þriðjudagur, desember 11, 2007

eigin persóna týnd??

Lýsandi dæmi þess að vera sokkin heldur djúpt í mömmuheiminn er þegar maður gerir verkefni í skólanum og skrifar ítrekað:

SNUÐningur í stað Stuðningur.

í smá texta kemur eftirfarandi fyrir "til SNUÐnings" "SNUÐningur" "SNUÐningsáhrif" GARRRRGGGHHHH...*reitihár* mig vantar húsmæðraorlof!


ps. hvernig er hægt að hafa svona mikið að gera í desember hjá 7 ára gríslingum?? LK er að allan daginn og kemst ekki að sofa vegna anna fyrr en allt of seint og er því skiljanlega alltaf svolítið þreytt. Nú eru svo margir að bjóða okkur í alls konar jólaundirbúningsdót, kökubakstur, heimsóknir eða bæjarrölt og bara name it...en við komumst ekki í NEITT fyrr en um 20. des - og ég sjálf svo ekki fyrr en eftir 21. des. GRENJ!

1 ummæli:

Inga Lilý sagði...

Getur byrjað að hlakka til að klára skólann. Ég hugsa enn með hryllings til desemberprófanna þar sem maður lá með hausinn ofan í bókum til 21. des og hafði þá 3 daga til að gera ALLT. Einu dagarnir sem maður leyfði sér að kaupa jólagjafir voru þegar maður var í prófi um morguninn og engan veginn upplagður til að byrja á næsta efni.

En já - hugsaðu hvað þú átt eftir að hafa það gott eftir 21. des - taka bara pollýönnu á þetta líka! :)