fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Flutt...

á Smilla.blog.is ... í bili

Sjáumst þar ;)

föstudagur, janúar 25, 2008

Dásamlegar fréttir - tilefni til að blogga...

Ef einhvern tíman er tilefni - þá NÚNA

álpaðist í leti minni í dag inn á visir.is og fann þar þær yndislegustu fréttir bara...í laaaangan tíma.

KÍKIÐ hér Á VÍSIR og sjáið

ÆÐISLEGT - hlakka til að geta aftur horft á sjónvarpið, hlustað á útvarpið, talað við familýjuna, lært eða bara heyrt eigin hugsanir - DÁSAMLEGT - meiriháttar!

fimmtudagur, desember 20, 2007

Jólaspenn*

Er ógó jólaspennt núna...er svoddan krakki :P
Finnst geggjað þegar pósturinn(eða aðrir) kemur með pakka til mín þessa dagana. Ekki af því að mig langar að rífa upp pakkana.
Ég er spenntust fyrir því að rífa upp kassana og sjá hvað stendur utan á pökkunum. Þar sem meirihluti heimilisfólks heitir 2 nöfnum (mamma hans Bjössa var að spara) hlakka ég alltaf til að sjá hvort fólk nái að beygja bæði nöfnin okkar rétt.

Dæmi um algengar vitleysur eru:
Til Sigurlaugu Evu, Sigurlaug Evu
Til Láru Kristín, Láru Kristínu
Til Stefán Darra

Veit ekki hvað er að mér - en mér finnst þetta geggjað spennó...mér sem fannst ég velja svo auðveld nöfn svona beygingarlega séð.

túttilú

sunnudagur, desember 16, 2007

athyglisbrestur...eða bara engin athygli

Skólabækurnar fá enga athygli - ja, ég er að minnsta kosti með tímabundinn athyglisbrest. Get bara alls ekki fest hugann við þetta núna. LK á víst að mæta með jólasveinahúfu í skólann á morgun og mér er því hollast að fara niður í geymslu og tjékka í jólaskrautskassann hvort ég finni ekki eina eða tvær. Ef ekki þá þarf ég að drusla mér í slindina og ná í eitt stykki. Best að krossa puttana...

Ef ég þekki mig rétt...þá á ég pottþétt eftir að taka upp smáááá meira jólaskraut til að henda upp....bara smáááá. Eyði örugglega allt of miklum tíma í þetta í kvöld. arg...óþolandi að vita fyrirfram hvað maður er ruglaður.

fimmtudagur, desember 13, 2007

þreyta

LK kom heim í gær um kl 4, hún var svo þreytt að hún fór að sofa kl 17, vaknaði kl 20 til að fá sér aðeins að borða og sofnaði svo aftur. Hún fór svo í skólann í dag og ætlar að eyða næsta sólarhring með ömmu og afa í smá dekri fyrir næstu lotu. Kemur svo heim seinnipartinn á morgun og þá er það næsta prógramm. Get ekki beðið eftir að 21. des komi...hennar vegna!

miðvikudagur, desember 12, 2007

LK snillingur!

Í gær og á mánudag var svívirðilega mikið heimanám hjá LK, hún þurfti líka að æfa sig á flautuna og svo auðvitað að mæta í fimleika í gær. Í morgun var svo foreldrum boðið að koma í skólan og hlusta á krakkana syngja og spila á flauturnar sínar. Hendi hérna inn myndum - þið verðið að afsaka en þetta er pínulítið svona úr fókus þar sem við foreldrarnir sátum kílómeter í burtu. Hefði þurft að vera með einhverja massa spæjara aðdráttarlinsu til að ná þessu þokkalegu.

Hér má svo sjá smá video af þessum snillingum og má sérstaklega taka eftir að Emma öfugsnúna..nei ég meina Lára Kristín er örfhent á flautu. Hún er reyndar jafnvíg á báðar hendur en púkinn í henni kemur einstaka sinnum upp og henni finnst hún voða sniðug svona öfugsnúin.



Mæli reyndar ekkert sérstaklega með að hafa hljóðið á hæsta styrk...en þið ráðið svo sem.

þriðjudagur, desember 11, 2007

eigin persóna týnd??

Lýsandi dæmi þess að vera sokkin heldur djúpt í mömmuheiminn er þegar maður gerir verkefni í skólanum og skrifar ítrekað:

SNUÐningur í stað Stuðningur.

í smá texta kemur eftirfarandi fyrir "til SNUÐnings" "SNUÐningur" "SNUÐningsáhrif" GARRRRGGGHHHH...*reitihár* mig vantar húsmæðraorlof!


ps. hvernig er hægt að hafa svona mikið að gera í desember hjá 7 ára gríslingum?? LK er að allan daginn og kemst ekki að sofa vegna anna fyrr en allt of seint og er því skiljanlega alltaf svolítið þreytt. Nú eru svo margir að bjóða okkur í alls konar jólaundirbúningsdót, kökubakstur, heimsóknir eða bæjarrölt og bara name it...en við komumst ekki í NEITT fyrr en um 20. des - og ég sjálf svo ekki fyrr en eftir 21. des. GRENJ!