mánudagur, október 30, 2006

Köben var æði

Smelltum okkur í vélina á ferlega ókristilegum tíma - enda svo til trúlausir einstaklingar á ferð. Ég kvaddi Björninn og fylgifiska hans eins hratt og ég gat og arkaði á strikið. Var reyndar sársvöng þar sem morgunóbjóðurinn sem boðið var upp á í vélinni var gjörsamlega óætur með öllu....ekkert nýtt svo sem en þarna var slegið met í ógeðisflugvélamat. Maður getur nú verið mun lengur án matar ef búðir eru annars vegar svo ég massaði þetta alveg - gaf mér ekki einu sinni tíma í McDonalds eða annan álíka hroðbjóð þó það taki ekki nema 2 mín.

Skannaði aðeins búðirnar á leið minni (sem tók klukkutíma) að MamaRosa þar sem ég hitti Úrsúlu loksins eftir laaangt hlé...en það var alls ekki eins og við hefðum ekki hisst langan tíma - meira svona eins og ég hefði bara vinkað henni bless í fyrradag. Æði bara.

Við tókum stöðuna á búðunum og reyndum að læra almennilega á flóknu H&M búðina. Ég tók svo niður "mental notes" fyrir shoppinginn á föstudeginum og náði að henda í einn góðan poka í leiðinni...svona það sem ég gat ekki beðið með að taka. Borðuðum svo á MamaRosa (en ekki hvað) þar sem Úrsúla var bæði ráðgjafi og túlkur....talaði þessa fínu dönsku bara.

Föstudagurinn var rosalegur - við Björinn hrúguðum hratt og örugglega í pokana. Þegar við vorum svo farin að ryðja niður úr hillum og rekkum - grínlaust sko - drifum við okkur á hótelið með pokana. Puttarnir á okkur hafa sjaldan ef ekki bara aldrei verið eins líflausir...fjólublá og hvítröndóttir. Mössuðum svo Field´s líka....svo vel eiginlega að við komum okkur varla fyrir með pokana í hrikalegum dreka-Benz sem keyrði okkur heim á hótelið.

Létum nú líka dekra við okkur á Jensen´s og ultum þar út ca. þegar var verið að loka.
Laugardagurinn var ponsu stress...ekki að við hefðum ekki nægan tíma í flugið...heldur jújú - við hentumst aðeins á strikið aftur. Ég var farin að rífa vörurnar úr höndunum á starfsfólkinu í búðinni þegar við ákváðum að þetta væri komið gott.

Úff...komin út í langlokublogg núna - er hætt
Over and out

mánudagur, október 23, 2006

Tannlaus

Posted by Picasa

fimmtudagur, október 19, 2006

20 mánaða snillingur

Ég er óóóóógeðslega þreytt í dag, ormurinn sofnaði kl 8 og við foreldrastykkin um 1 leytið. Hann ræsti okkur svo rétt fyrir 6 en sofnaði svo að verða 7....svona bara rétt áður en vekjaraklukkan okkar fór í gang sko! Hann svaf svo á sínu græna þar til að verða 9 en þá reif ég hann upp og klæddi hann gargandi og sparkandi í fötin og hentist út á leikskólann með hann.

Hann var ekkert sérstaklega ánægður þar og borgaði fyrir sig með því að hella úr næstum 2 LÍTRA mjólkurkönnunni yfir allt matarborðið, sig, nærsitjandi krakka, gólfið, diskinn - já, svo ég gleymi nú ekki fulla glasinu sem hann var svo með af mjólk. Þúst, bara svona smá svona út fyrir sjáðu til. Ekki það - ég sat við hlið hans og sömuleiðis "ófaglærður-starfsmaður-leikskóla-sem-má-ekki-kalla-fóstru" sem sat hinu megin. Við gátum engu bjargað því hann var ansi snöggur að þessu. Hann gengur jú hratt og örugglega til verks.

miðvikudagur, október 18, 2006

Major iðjuþjálfun

Haldiði ekki að einkadóttirin og prinsessan þurfi ekki að fara til iðjuþjálfa! Ji, ég ímyndaði mér allt það versta þegar kennarinn tilkynnti okkur þetta - eins og það gæti virkilega eitthvað verið að barninu mínu...óóóó...NEI. Ástæðan sem kennarinn gaf var að hún heldur stundum (lykilorð: STUNDUM) vitlaust á blýanti.

Jebb, iðjuþjálfar hafa víst ekkert betra að gera en að kenna 6 ára ormum að halda á blýanti. Eins gott að vera búinn með massa háskólanám til þess að glíma við þetta mjög svo erfiða og ótrúlega krefjandi verkefni. Þess má kannski geta að einkadóttirin fékk gúmmí-grip (sem ég keypti) til að læra þetta nú örugglega og hefur farið mikið fram síðan þá - á ca. mánuði.

Fyrr má nú aldeilis vera vitleysan.

þriðjudagur, október 17, 2006

Staðan kl 10:44

Ég hélt að hann væri sofandi...silly me! Þetta gerði hann mjög hljóðlega, makaði flórsykrinum vandlega yfir allt gólfið - öllum 500gr. það var ekki korn eftir í pakkanum. GREAT - frekar svona vont að ryksuga flórsykurinn, maður fær annað slagið smá stuð svona af ryksugunni...getum kannski orðað það þannig að hjartað slær alla vega enn.
Já, ég sem sagt ryksugaði flórsykurinn upp og á meðan hann reddaði sér smávegis pappír til að lita á (nb. það var EKKERT á gólfinu nema skáparnir og taflan áður en hann komst þarna að. Posted by Picasa

mánudagur, október 16, 2006

HENSON anyone?



Ætli maður fari ekki að eignast hlut í henson kompaníjinu...?? Posted by Picasa

föstudagur, október 13, 2006

Ógissla leðile mamma sko

Sagði 3 sinnum í röð nei við LK í gær þegar hún spurði mig hvort hún mætti fá e-ð.

stuttu síðar sagði hún grafalvarleg:
Þegar ég verð stór og verð foreldri þá ætla ég sko aldrei að segja nei við börnin mín.

klukkutíma síðar í bílnum:
Mamma, ég ætlaði bara að láta þig vita aftur að ég ætla aldrei að segja nei við mín börn þegar þau verða fædd. Það er ógissla leiðinlegt að láta segja nei við sig...HAH!!!

fimmtudagur, október 12, 2006

Crap

Startaði þessu blessaða bloggi núna fyrir 5 sek, ógissla töff á'ðí en fattaði svo að ég er búin að gleyma login nafninu....ohhhh - so me