mánudagur, júlí 30, 2007

Part 1 í sumarfríi

Ég með eina ófreskjuna sem Ína ræktar. Á reyndar að vera kettlingur en hver veit...
Þessi mynd er ekki af börnunum heldur af stolti afans....BÍLNUM - he loves it.....and we don´t know why!
LK prinsessa ....really sko
Fengu í fyrsta skipti Lucky Charms og fannst það ekkert vont ;)
Posted by Picasa

þriðjudagur, júlí 17, 2007

SD snillingur!

Kíktum í Hagkaup - hann átti 2 krónur í kerrunni sinni og krafðist þess að fá að versla SJÁLFUR þennann bangsa fyrir þær. Ég hafði ekki hjarta í mér til að segja annað en já. Laumaði kortinu svo til afgreiðslupíunnar á kassanum....bjóðum þennan bangsa þá bara velkominn í hóp bangsanna sem fyrir eru á heimilinu. Þeir hlaupa á tugum ef ekki hundruðum. ARGG...krakkinn hefur pottþétt fengið kennslustund hjá Steinari...grrrrrr...

Annað - í neðra Hagkaup (Kringlunni sko - ekki hell). Fórum að nammibarnum og völdum okkur smá nammi í poka, einn fyrir SD og einn fyrir LK (og náttúrlega einn fyrir mig án kaloría ;) SD heimtaði pokann auðvitað strax svo ég batt rembihnút sem ég gæti varla leyst sjálf á hann. Labbaði svo alla búðina áður en ég fór á kassann. SD furðu hljóður gegnum búðina. Kom síðar í ljós þegar hann átti að setja pokann upp á færibandið að hann hafði búið til oggulítið gat á pokann og var búin að éta helminginn af namminu. GARG...hvað gerir maður við svona börn? ...lúmski ormur...
Posted by Picasa

föstudagur, júlí 13, 2007

Húmoristar á Dominos?

Var að skoða matseðilinn þegar ég rak augun í þetta:
Skv. til dæmis Osta & Smjörsölunni heitir þetta Gráðostur/Gráðaostur
Posted by Picasa

Adorabúl sjúús


Keypti mér þessa "tótallí adorabúl sjúús" í gær. Þeir eru eins og efri myndin á litinn en hin myndin er kannski skýrari fyrst þetta er svona glærhvítt á hvítu...??
Eriddiggi ég?

mánudagur, júlí 09, 2007

Er verið að grínast í mér?

Það hlýtur bara einhver að vera að fokka í sjónvarpsdagskránni því það er nákvæmlega akkúrat ekkert í TV þessa dagana!! Ég er að verða búin með friends seríuna (hef aldrei horft á alla þættina í röð) og mig langar eiginlega ekki að sjá neitt annað í augna. Ég er meira að segja byrjuð að lesa lögfræðibókina!! Þá er það orðið svart. Þarf að taka lögfræðikúrs (hehe...skrifaði krús) í vetur og þar sem veturinn verður CRAAAAZZZYYYY! þá ákvað ég að fletta í gegnum bókina núna. Maður á lífi hvað þetta er leiðinlegt. Efnið er svo þurrt að það brakar í því - Æ kidd jú nott, ekkert erfitt bara skrauuuufaþurrt (shit...skrifaði fyrst "skaufa.." - þarf að láta kíkja á lyklaborðið...eða mig)

Tók 5 myndir og sver það, þær eru allar hreyfðar...eitthvað a.m.k. - Geta ekki verið kyrr í 2 sek.
Posted by Picasa