miðvikudagur, janúar 31, 2007

Trúi þessu ekki!!!

Aaaaahhhh...ég trúi ekki hve frek ég get verið!

Ohhh.., heimtaði að B. myndi fara og sækja popp handa mér í sjoppuna og það STRAX - n.b. ógeðslega frekt af mér þar sem hann er með meiddi á fætinum. Ég trúi þessu ekki....og mig langaði ekki einu sinni neitt stjarnfræðilega í þetta popp.

Ohh...men, sendi sjálfa mig í Brat camp

þriðjudagur, janúar 30, 2007

Í dag

fara sumar femínistapíur í taugarnar á mér. Það að ætla að kjósa konu t.d. sem formann KSÍ BARA af því að hún er kona er fáránlegt. Það að telja konur í sjónvarpsþáttum vs. karlmenn í sömu þáttum er enn fáránlegra. Það að hafa kvenkyns skoðun á ÖLLU er út úr korti.

Ég er "all for it" ef við erum að tala um jafnhá laun karla og kvenna fyrir sömu vinnuna eða álíka en ég hætti ekkert að versla í Nettó af því að það afgreiða mig oftar karlmenn þar en konur.

(Þessi pirringur á uppruna sinn í tíma á miðvikudaginn síðasta)
*pirrrrrrrrrrr*

mánudagur, janúar 29, 2007

Fashionably late...

...eins og mammasí!

Akkúrat 2 ár í dag síðan þetta littla rahhgat átti að koma í heiminn...en hann kúrði í kúlunni sinni aaaðeins lengur. Var ekkert að flýta sér. Sjáiði kðúttið:

Svo fínn í "Bubba byggið nátthötin sín"

Stefán Darri hvað ertu gamall?
SD: "Einþáþþ"
Posted by Picasa

föstudagur, janúar 26, 2007

E R F I T T ! ! !

Veðjaði við Kristínu skvís um að ég gæti sleppt sykruðu gosi í 2 vikur. Ef ég klikka þá borga ég henni einn fimmara. Í dag er dagur 2


Djöfull er ég pirruð núna, vantar koffín sárlega og allt þetta diet/light drasl er VIÐBJÓÐUR og ÓGEÐ. Hvernig í veröldinni kom ég mér í þetta?

*piiirrrrrrrrrrrrrrrr*

föstudagur, janúar 19, 2007

Nennan

LK í Kringlunni (eftir rúmlega 2ja tíma labb þar)
LK: Mamma, Þegar ég verð gömul þá held ég sko að ég nenni bara ekkert að fara svona í búðir
Mí: nú? af hverju ekki?
LK: æji, þetta er svo þreytandi, ég held ég fari bara frekar á elliheimili.

Já, þar hafiði það! Spurning hvort hún verði á sömu skoðun eftir sumarvinnu á Hrafnistu...don´t think sooooo...

Eðal-LK !

Vaknaði við börnin í morgun þar sem þau reyndu að hoppa móður sína til meðvitundar í hjónarúminu...var rooosa þreytt sko


Kom þeim út á sek. átta - sem er persónulegt met en bara af því ég átti að vera mætt í foreldraviðtal kl 8:15....sem er náttúrlega bara fáránlegt, spurning hvort kennslupían hafi verið að testa mig...Náði nú að skutla SD í leikskólann og vera mætt 8:15 í viðtalið en hey, þetta varð að frábærum degi svo það er spurning hvort ég geri þetta ekki bara oftar....kannski ekki ein eins og í dag en...

Ég var vel undirbúin fyrir viðtalið, auðvitað tilbúin til að verja ungann minn fram í red dead! Það veður sko enginn yfir mína mýslu. Síðasta viðtal fór á þá leið að hún átti að fara í málþroskapróf....jebb, litlan mín sem hefur ekki þagnað síðan hún fæddist(rídikkjúlös) - mér fannst þetta auðvitað fáránlegt og lét vita af því þá og svona til að toppa vitleysuna þá átti hún að fara til iðjuþjálfa....já ég skrifaði IÐJUþjálfa af því hún hélt örlítið vitlaust á blýantinum....svona eins og flest 6 ára börn(5 ára þá) bara. Ég ætla rétt að vona að iðjuþjálfarnir hafi eitthvað betra að gera en að pikka í 6 ára kríli og segja þeim að halda rétt á blýanti.


Well, ég mætti vel vopnuð námsmatinu hennar (sem kom reyndar rooosalega vel út), minnismiða með spurningum og punktum og svo stóra skapinu mínu. Ég var í ham...sem var svo barasta óþarfi því þetta var rosalega fínt viðtal.
Kennarinn tekur á móti okkur brosandi og byrjar á því að segja að hún sé svoooooo ánægð með LK, sagði hana hafa tekið svo miklum framförum, sé áhugasöm um námið, sé ótrúlega klár að lesa og skilji stærðfræðina alveg, skrifi fallega stafi, sé vandvirk, stillt, fari alltaf eftir fyrirmælum, taki virkan þátt í umræðum og sé óhrædd við að reyna við ný verkefni jafnvel þó hún telji sig ekki endilega geta þau o.s.frv. (blýantshaldið er meira að segja allt að batna og málþroskaprófið...hehehe...hún er yfir meðallagi þannig að ...no worries!)


Svo tók hún fram að þetta hefði verið mesti misskilningur í byrjun þar sem hún hafi greinilega bara verið mjööög róleg, feimin og ekki búin að finna öryggið í skólanum. ....sem er beisiklí það sem ég sagði síðast. LK er nefninlega eins og klón af mér stundum...við þurfum stundum að kanna nýja umhverfið aðeins áður en við opnum fyrir málstöðina og ausum úr viskubrunnum okkar með fötu.

Ég óskaði svo eftir viðtali við leikfimi/sundkennarann og var tilbúin í hvað sem var frá henni því familíjan hefur kannski ekkert verið þekkt fyrir íþróttaiðkun undanfarið. Viti menn...haldiði að hún hafi ekki fengið fínustu umsögn þar sem hugsast getur. Hún var sérstaklega ánægð með hvað henni hafði farið mikið fram, hún reyni við allt þó hún sé um leið passasöm, fari VEL eftir fyrirmælum og sé kurteis og hlýðin. Í heildina sagði hún bara að það væri sko alls ekkert hægt að setja út á hana og að hún gæti talað LENGI um allt það jákvæða sem henni dytti í hug.

OMG, ég sveif um á bleiku skýji í dag (ekki að ég hafi ekki vitað þetta allt áður...thíhí)
Verðlaunaði ofurbarnið með bakarísferð um 9 leytið, fatakaupum í Kringlunni og leyfði henni að velja hvað hún borðaði í hádegismat. Henni datt reyndar fyrst í hug að fara í IKEA til að borða en þegar ég sagði að hún mætti ALVEG ráða valdi hún American Style. Kíktum svo aðeins í smáralind og á ömmu og afa....þegar hún fór að sofa sagði hún að þetta hefði sko verið ÆÆÆÆðislegur dagur...og sofnaði brosandi.

Perfect!
ohhh...svo gaman að eiga svona duglegan unga (sorry montið....ég bara varð...)

fimmtudagur, janúar 18, 2007

Fór á deit ;o)

Tall, dark & handsome bauð mér á deit í hádeginu...út að borða...mmmmm...
Til að jafna þetta út (jafnréttispían ég) fór ég og sótti deitið. Borðuðum á okkur gat og höfðum það næs. ÆÐIS!

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Tilbúinn og fínn...bíður bara í Lazy-boy
Mini-promqueen á leiðinni niður stigann með slæðu og alle græj...á leið í greiðslu ;)
Posted by Picasa

þriðjudagur, janúar 16, 2007

svona í tilefni af því að jólin eru löngu búin

Tréð skreytt af mikilli innlifun
Le kids sáu um að skreyta tréð og sig sjálf...
Pakkaflóðið náði yfir alla sólstofuna, milli stólanna og svollis....tréð er minnkað um hver jól til að pakkarnir komist nú fyrir. (n.b. myndatökumaður stendur úti á palli þar sem hann komst ekki fyrir inni í sólstofunni til að taka mynd fyrir pökkum).
Eins og alltaf er ómögulegt að ná almennilegri mynd af systkynunum. (Hér átti t.d. eftir að greiða LK.) Ein af ástæðunum fyrir því að það var ekki nenna til að skrifa jólakort þetta árið. (sorry guys....næstu jól....LOFA!)

föstudagur, janúar 12, 2007

Ógissla heppin maaaarrrr...

Bleik....what else?
Ohhh...svo floooooooooooooott! Ógó notó birta í stofunni núna.
Posted by Picasa

fimmtudagur, janúar 11, 2007

I´ve got a big sister....can you tell?


Takið sérstaklega eftir the bling-bling um hálsinn og glossinum á vörunum....ja...eða bara andlitinu yfir höfuð!
Posted by Picasa

miðvikudagur, janúar 10, 2007

föstudagur, janúar 05, 2007

Bestur svona ??


Sjáiði sæta litla sofandi, kveikt á fína græna pödduljósinu hans


og ein með flassi ;) smá skráma og marblettur eftir að þau systkynin skullu saman....en það lagast fljótt...thíhí

Sko!

Ef þetta er ekki tilefni til þess að skríða upp í rúm og bíða þess að nýr dagur renni upp með nýrri spá, þá veit ég ekki hvað!

"Ekki pína fjölskyldumeðlimi til þess að vera þér sammála eða lúta vilja þínum. Sýndu mildi og mýkt og gakktu úr skugga um hvað aðrir vilja. Best er að báðir aðilar séu sáttir."

Hef á tilfinningunni að þetta verði pínu frústrerandi dagur fyrir mig ef þetta er það sem þarf til í dag. Styður samt kenningu mína um að B. sé að vinna á mbl.is við að skrifa stjörnuspánna fyrir vogina.

*update*
SHIT, B. er líka í náðinni hjá fröken Ellý:
" Vogin (23.sept - 23.okt)
Reyndu ekki að breyta fólkinu í kringum þig því þá vaknar hjá þér vonsvikni. Axlaðu þess í stað ábyrgð á eigin tilfinningum. Það er mjög mikilvægt að fólk í merki vogar sætti sig við eiginleika sína og noti þá til góðs. Þú, sem brautryðjandi, lendir eflaust oft í árekstum út af hefðbundnum málum en hefur jafnframt geysilega hæfileika til að sigra og ná persónulegum árangri."

miðvikudagur, janúar 03, 2007

hmmm...

Mig er farið að gruna að B. skrifi stjörnuspánna fyrir vogina, því þetta passar eiginlega OF vel.


"Himintunglin varpa ljósi á svo marga valmöguleika, að vogin veit varla í hvora löppina hún á að stíga. Ef eitthvað er ekki gaman, skaltu sleppa því. Ef þú verður að gera eitthvað, skaltu gera það skemmtilegt. Ein framsækin athöfn kemur tískubylgju af stað."

Ég er svo nákvæmlega svona - ef það er ekki skemmtilegt...sleppa því bara!

Bara spurning um hvaða framsæknu athöfn ég þarf að framkvæma til að koma tískubylgjunni af stað...!?




þriðjudagur, janúar 02, 2007

Skipulag vs. skipulagt kaos

Í dag hafði ég hugsað mér að eyða deginum í að taka skápa í gegn, henda drasli sem ég nota aldrei og búa til smá pláss í þessum skápum mínum. Hafði líka ákveðið að kíkja aðeins á geymsluna ef tími gæfist eftir skápatiltektina. Ætlaði að henda eins og ég gæti úr geymslunni og bora upp nýja RISA-snaga undir dót sem ég nenni ekki að hafa á gólfinu.

Ja, ég ákvað svo að kíkja á mbl.is á meðan ég borðaði morgunmatinn - sem ég geri nú annars aldrei en fyrst ég ætlaði að vera svona "dugleg" í dag varð ég eiginlega að borða morgunmat. Allavega...

Þetta er svo stjörnuspá dagsins í dag fyrir vogina...mig!
"VOG 23. september - 22. október
Forðaðu þér frá þeirri tímasóun að leita að hlutum með því að skipuleggja þig betur. Allt hefur sitt pláss. Ef ekkert er plássið, er hugsanlegt að þú þurfir ekki á því að halda."

Einhverra hluta vegna hef ég ekki komin neinu í verk - ENGU! Merkilegt hvað ég tek mikið mark á þessari stjörnuspá sem virðist einhvern veginn alltaf passa við mig.