miðvikudagur, desember 27, 2006

Nenni ekki netinu núna...

...en vona að þið hafið haft það gott um jólin, ég ætla alla vega að halda áfram að hafa það gott og hvíla tölvið. Sendi hér með mynd af einni af uppáhaldsgjöfinni sem ég fékk. Love her...
Ef nafnið mitt stendur ekki á henni þá veit ég ekki hvað - og hún hefur sko fengið að vinna fyrir sér þessa 2 sólarhringa...

fimmtudagur, desember 21, 2006

Stutt blogg - er lasin...enn og aftur

Út um eldhúsgluggann
Jólalegt eða hvað???
Posted by Picasa

laugardagur, desember 16, 2006

Vanþakklát?

Hvað sem ég fæ nú í jólagjöf þá ætla ég bara að biðja fólk um að gefa mér EKKI svona. Ég tel mig nú ekki vera vanþakkláta varðandi þær jólagjafir sem ég fæ en sá sem gefur mér svona í jólagjöf fær að sjá eftir að hafa ekki átt eina slíka sjálfur! áður en það varð of seint.



hér má svo sjá auglýsinguna!

mánudagur, desember 11, 2006

Sætastur sætastur...

 

 

 
 Posted by Picasa

Hann var að fá þessa nýju rándýru húfu. ull að utan, bómull að innan og bólstruð að framan. Þessa hjúmongus þykkustu húfu ever er hægt að fá með föstum mánaðarlegum afborgunum hjá íbúðalánasjóði.

...ok, smá grín - keyptum hana í Hagkaup á 3500 kall takk fyrir þeinkjú verrí möts!!! Hún var merkt með letri fyrir þá sem sjá illa, blindraletri og innbyggðum lesnum skilaboðum ásamt 2 ástraujuðum eðalmiðum frá Merkt svo hún ætti alla vega ekki að týnast.

Tryllt!

Er að tryllast úr spenningi hérna. Aðallega vegna þess að jólasveinninn kemur í fyrsta skipti í kvöld og mér finnst þetta svo gaman. Finnst þessi bilaða trú svo æðisleg. Það barn sem lýgur því að mínu að jólasveinninn sé eitthvað plat fær að sjá eftir því!!!

Er pínu þreytt á að sussa á fólk sem fer að tala um þegar ÞAÐ gaf einu sinni í skóinn í 140 desibelum svo örugglega öll eyru nái þessum upplýsingum. PASSA SIG TAKK!!! Hér vitum við að þeir sem hafa ÞURFT að gefa sínum börnum í skóinn eiga bara óþæg og illa upp alin börn. Það er JÓLASVEINNINN sem gefur í skóinn og ENGINN annar...ekkert plat neitt.

PUNKTUR!

miðvikudagur, desember 06, 2006

Afmælissöngurinn - eitt eða tvö erindi??

Er ekki bara hægt að ákveða í eitt skipti fyrir öll hvort afmælissöngurinn eigi að vera 1 eða 2 erindi? Fólk byrjar yfirleitt að klappa eftir fyrsta á meðan 2-3 halda áfram með sönginn...sem verður ferlega vandræðalegt eitthvað.

Spurning um að hafa 2 erindi upp að ákveðnum aldri því svo vill maður ekkert sérstaklega heyra hversu gamall maður er - verður meira svona eins og hæðnissöngur þegar kemur "hann er fjörtíuogtveggjaára í daaaag..múhahaha". Annars nei - bara hætta þessum söng eftir ca. 10 ára eða svo (mætti reyndar mín vegna bara hætta þessu komplett).

Og svona að lokum....PLÍÍÍÍS, ekki garga "húrra..húrra..húrraaaaa" á eftir - það er eitthvað svo hallærislega sænskt - svona emil í kattholti gamalt.

Weird pæling kannski en spannst upp frá því að LK fékk boðskort í afmæli enn einu sinni.

Karlmenn og synir þeirra?

Ég hef oft velt þessu fyrir mér og þá oftast þegar ég sé "svona" menn. Mér finnst nefnilega svo skrítið að þegar sumir karlar eignast stráka þá fer þeim að finnast töff að vera í eins fötum og þeir. Frúin á heimilinu prjónar t.d. eins norskar peysur á feðgana eða álíka. Yfirleitt erum við að tala um hallærislegustu flíkur sem til eru. Hvað fær karlmenn til að langa allt í einu í norska prjónapeysu??

Annars finnst mér þetta orðið svo algengt að ég keypti eins langerma boli á feðgana á þessu heimili...bara eins og ég væri að drekka pepsi (sjaldnar sem ég drekk vatn sko)- mér fannst þetta svo eðlilegt. Þeir eru líka voða glaðir með þetta en ég held að það sé nú aðallega vegna þess að bolirnir eru flottir og eiga ekkert skylt með norskum prjónapeysum eða flónelskyrtum.

Ég hefði seint farið að kaupa eins boli, hvað þá prjóna eins peysur - á þau feðginin LK og B. Það er ekki enn komið í tísku að vera eins og dóttirin. Er þetta eitthvað sér karlagens dæmi eða?

B má þó þakka fyrir að fólkið í hverfinu er ekki mikið fyrir eins krumpugalla, flíspeysur og aðrar eins hallærisflíkur því ég er svo meðvirk að það væri aldrei að vita nema ég kæmi heim úr einni búðarferðinni með svoleiðis pakka...ekki það, ég færi auðvitað aldrei í þetta en að kaupa einhvern óþarfa er allt annar handleggur.

Vanish Chrystal white

Ég hata Vanish auglýsingar! Krakkinn(sá eldri) apar þetta upp og tuðar ef hún sér minnsta blett einhvers staðar. Kom heim úr skólanum um daginn og gargaði með áhyggjufullri röddu hvort við ættum ekki örugglega Vanish. Þegar ég svaraði að ég væri nýbúin að kaupa það heyrðist frá henni: "HJÚKKET, Ég sullaði óvart smá sósu á buxurnar mínar í skólanum en það er þá allt í lagi fyrst við eigum "Veldu bleikt - veldu Vanish og segðu bless við blettinn" - alveg með auglýsinguna upp á 10 takk fyrir í endurflutningi.

URG...nú gengur þetta orðið undir nafninu "segðu bless við blettinn" hér á heimilinu og er notað óspart því ormunum finnst það nú ekkert tiltökumál að sulla niður, því við eigum jú "veldu bleikt, veldu vanish og segðu bless við blettinn" og ekki vandamálið að láta kellinguna standa bara við þvottabalann að nudda inni í þvottarhúsi all day.

Helvískar auglýsingar!


...verð samt að viðurkenna, ég keypti þetta hvíta helv&%$ Vanish úr auglýsingunni þar sem "skyrtan mín er ekki grá, hún er HVÍÍÍÍT" kemur fram. Setti þetta í hvíta(gráa) adidas peysu sem SD á/átti - ætlaði að henda henni en þetta virkaði svo djöf/&%$ vel að ég "neyðist" til að láta krakkann nota peysugarminn áfram, sem er nú eins og ný.

mánudagur, desember 04, 2006

Krúttlegt!




Við fengum hana Berglindi í heimsókn um daginn. Eins og sést er hann týpískur karlmaður og er sko alveg sama þó hún sé aðeins að laga hann til. Hann er "ponsu" egóisti og hefur engar áhyggjur af neinu en er aftur á móti MJÖG ánægður með að það sé verið að taka myndir af honum...en ekki hvað

sunnudagur, desember 03, 2006

Pepsi í heimsendingu!

Langaði stjarnfræðilega í Pepsi áðan...og í allan morgun.

Nennti ekki út því ég var og er enn á "nátt"fötunum.

Fékk Pepsi heimsent frá Nettó ásamt smá nammi. Sendillinn heimtaði sleikjó og afganginn af peningnum fyrir sendilsstörfin. Sendillinn er Lára Kristín!

Mikið svaaakalega er þægilegt að eiga börn.

Þyrfti kannski að fara betur yfir það með henni hvernig maður þrífur íbúðina en læt það bíða, gef henni frí í dag fyrst það er sunnudagur.

föstudagur, desember 01, 2006

Athyglisbrestur?

Get svo svarið það - ég hlýt að vera með athyglisbrest!

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

*PIRRRRRRRR...*

Var heima í dag þar sem litli gormur var veikur. Ég hafði dregið ....já virkilega DREGIÐ B. inn í rúmfó til að kaupa seríur í gluggana í gær þegar við vorum að fara á læknavaktina. Ég var nefninlega svo heppin að það var ekki búið að loka þegar við vorum þarna á ferðinni. B. var ekki eins heppinn þar sem hann þolir ekki RL.

Well, þar sem ég var nú föst heima ákvað ég að henda seríunum upp...tja..eða henda og ekki henda - meira svona mæla nákvæmlega út upp á millimeter en ok, ákvað áður en ég færi nú að festa þetta upp að stinga þessu nú aðeins í samband fyrst til öryggis. Nei takk, það kviknaði nú ekki einu sinni á þessu drasli....GRENJ!!

Klæddi krakkana áðan þar sem ég var AFTUR svo heppin að það var opið lengur í kvöld í smáralindinni. Fór í Hagkaup og keypti seríur þar, þessar rúmfatalagersdruslur fá sko að fljúga í hausinn á þeim aftur! Ohhhhh....hata svona vesen.

Jæja, farin að hengja nýju fínu seríurnar upp!

mánudagur, nóvember 27, 2006

Sími-ring...ring...ring

OK, nú vantar mig heimasíma - veit samt EKKERT hvað er sneddíj - hvað eru bestu símarnir...plís bara ekki segja DORO þar sem ég þarf þá að éta smá ofan í mig sem ég sagði. Vil hafa almennilegan þráðlausan heimasíma með öllu þessu helsta...ekki of strípaðann og hann má ekki kosta hönd og fót því við erum jú með gorm sem nær að eyðileggja ALLT! suma daga.

Any ideas?

laugardagur, nóvember 25, 2006

Fjölgun í fjölskyldunni...

Neinei, ég er ekki ólétt en......
.
.
.
.

.
.
.
við ætleiddum litla stelpu í dag!.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
...lítinn dverghamstur sko...



 Posted by Picasa

föstudagur, nóvember 24, 2006

Hár


fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Jarðskjálfti?



Neiiiii, bara systkynin að leika sér saman - ef einhver er að spá þá er þetta rimlarúmið á hliðinni og himnasængin alveg komin í drasl þar við hliðina Posted by Picasa

Hvar eru tennurnar?



Hmmm...fer það nokkuð á milli mála Posted by Picasa

Pirrandi?

Bara aðeins að bögga hana, reyna að vekja...
Já, þú losnar sko ekkert við mig.... Posted by Picasa

mánudagur, nóvember 13, 2006

Veik...

...eða...

Ég sef ekki nógu vel, hef annað hvort ekki lyst á að borða eða borða yfir mig, geng um gólf, sé stjörnur annað slagið og það liggur við yfirliði ef ég hreyfi mig of snögglega, er eiginlega alveg búin á því bara. Langar að sofa lengi en samt hef ég engan tíma í það, snýst í hringi ef ég ætla mér að gera eitthvað og kem þess vegna engu í verk...og hvers vegna...



Jú, ég er ekki einu sinni BYRJUÐ á jólakortunum eða öðru......ó mæ goooood og það eru alveg að koma jól. Nú verð ég bara að fara að klára þetta...þetta gengur ekki!

föstudagur, nóvember 10, 2006

Er hægt að segja nei?

LK er sjúklega tapsár en hefur samt sem áður takmarkað keppnisskap sem passar kannski ekki alltaf saman. Sumir kalla þetta kannski frekju...! hehe
Hún vill helst ekki keppa en vill samt vinna...sem sagt að maður gefi bara leikinn strax í byrjun.
Ég var búin að lofa henni að ég myndi spila við hana eitt spil ef hún myndi gera fínt í herberginu sínu....sem hún gerði reyndar ekki. Ég, orðin nett þreytt á draslinu hennar og að hún tæki ekki til, sagði henni að ná í tannburstann sinn strax og skutlast svo í náttföt og beint að sofa.

Ég tannbursta hana svo og hún fer í náttfötin.....grunsamlega fljótt.
Hún kemur svo fram með Electo spilið og spyr
LK: mamma, getum við ekki tekið eitt spil
Ég: Nei, þú tókst ekki til í herberginu þínu
LK: ok (snýr við og fer til baka - n.b. suðar ekkert)
***
LK: (kemur aftur) Mammmmmmaaaaaaaa.....getum við þá spilað Ludo einu sinni...?
Ég: Nei
LK: æhj....en mammaaaaa, eitt Ludo og ég skal vera rosa glöð ef ég tapa?

Er hægt að segja nei?

Fröken skipulagða maybe?

Bíddu, finnst einhverjum þetta asnalegt??? Það nefndi einhver að ég væri ekki normal...
Ég meina, ógeðslega hentugt að vera með tilbúin föt í leikskólann fyrir alla vikuna. Posted by Picasa

Næs veððer

N.B. þetta er ekki í verstu kviðunum

Voða fínt, sést ekki einu sinni út að sundlaug ;) - klukkan er ca. þrjú þarna.....ekki sjö (ógeðslega dimmt)
Rosa fínt...eða þannig Posted by Picasa

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Fíkill?

Hef aldrei verið neinn massa útlandafíkill en finnst ekkert leiðinlegt að fara. Nú hins vegar fórum við til DK fyrir nokkrum dögum síðan bara og mig langar svo aftur að ég reyndi að sannfæra mömmu og pabba um að panta 3ja manna herbergi á hótelinu sem þau ætla að gista á í Köben þegar þau fara.

Var sem sagt að hjálpa þeim að bóka, mamma spottaði þetta plott mitt og vildi ekkert með mig hafa þessa daga sem þau fara. Sagði að ég væri vel yfir 13 ára sem er hámarksaldur barna til að þau megi vera í sama herbergi og foreldrar sínir.

...og ég er svona á mörkunum við að vera pirruð...fíkill kannski?
*Langar bara svo í Jensen´s kjúkling
*langar í H&M...þ.e. ef það er búið að fylla á hillurnar aftur
*langar að sjá köben í jólabúningi
*langar að rölta strikið og skoða fólkið

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Undrabarn?

SD teiknaði þessa mynd á ísskápinn okkar þann 21. október. Hann kom svo hlaupandi til okkar og tilkynnti okkur að þetta væri blóm. Okkur fannst þetta og finnst enn að sjálfsögðu mjög flott hjá honum...

...þetta hefði reyndar ekkert þótt skrítið svona vanalega - nema hvað....2 dögum síðar (23.okt) kemur hann aftur til okkar með tússpennan í hendinni og kallar sigri hrósandi "lita - blóm - lita blóm" - útkoman er hér fyrir neðan ....very spes fyrir 20 mánaða lítinn gorm.

Eða hvað finnst ykkur?
Posted by Picasa

mánudagur, nóvember 06, 2006

Púki litli




Posted by Picasa
Húfan er týnd.....auglýsum hér með eftir bestu húfu í heimi...

laugardagur, nóvember 04, 2006

babyborn *Risaútgáfa*


Barnið er auðvitað ekkert annað en snillingur...S N I L L I N G U R
Posted by Picasa

föstudagur, nóvember 03, 2006

Flottustu börnin


Unglingurinn


Stubburinn
Posted by Picasa

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

Krútt

Eitthvað athugavert við þessar myndir?


Hvað er með þessi súkkulaðigen? Þetta hefur barnið pottþétt frá mér - laumast reglulega í bökunarskúffuna til að ná sér í smá orku...
Posted by Picasa

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Mjóddin

Elska að fara í mjóddina í hádeginu annað slagið. Ég upplifi mig alltaf svo heppna, hamingjusama og æðislegasta á eftir. Gott egóbúst....ekki að það þurfi eitthvað en æji...
Spörning hvort Mjóddin þurfi ekki að fara að einblína svolítið á nýjan markhóp - fá nýtt fólk þarna inn. :P

mánudagur, október 30, 2006

Köben var æði

Smelltum okkur í vélina á ferlega ókristilegum tíma - enda svo til trúlausir einstaklingar á ferð. Ég kvaddi Björninn og fylgifiska hans eins hratt og ég gat og arkaði á strikið. Var reyndar sársvöng þar sem morgunóbjóðurinn sem boðið var upp á í vélinni var gjörsamlega óætur með öllu....ekkert nýtt svo sem en þarna var slegið met í ógeðisflugvélamat. Maður getur nú verið mun lengur án matar ef búðir eru annars vegar svo ég massaði þetta alveg - gaf mér ekki einu sinni tíma í McDonalds eða annan álíka hroðbjóð þó það taki ekki nema 2 mín.

Skannaði aðeins búðirnar á leið minni (sem tók klukkutíma) að MamaRosa þar sem ég hitti Úrsúlu loksins eftir laaangt hlé...en það var alls ekki eins og við hefðum ekki hisst langan tíma - meira svona eins og ég hefði bara vinkað henni bless í fyrradag. Æði bara.

Við tókum stöðuna á búðunum og reyndum að læra almennilega á flóknu H&M búðina. Ég tók svo niður "mental notes" fyrir shoppinginn á föstudeginum og náði að henda í einn góðan poka í leiðinni...svona það sem ég gat ekki beðið með að taka. Borðuðum svo á MamaRosa (en ekki hvað) þar sem Úrsúla var bæði ráðgjafi og túlkur....talaði þessa fínu dönsku bara.

Föstudagurinn var rosalegur - við Björinn hrúguðum hratt og örugglega í pokana. Þegar við vorum svo farin að ryðja niður úr hillum og rekkum - grínlaust sko - drifum við okkur á hótelið með pokana. Puttarnir á okkur hafa sjaldan ef ekki bara aldrei verið eins líflausir...fjólublá og hvítröndóttir. Mössuðum svo Field´s líka....svo vel eiginlega að við komum okkur varla fyrir með pokana í hrikalegum dreka-Benz sem keyrði okkur heim á hótelið.

Létum nú líka dekra við okkur á Jensen´s og ultum þar út ca. þegar var verið að loka.
Laugardagurinn var ponsu stress...ekki að við hefðum ekki nægan tíma í flugið...heldur jújú - við hentumst aðeins á strikið aftur. Ég var farin að rífa vörurnar úr höndunum á starfsfólkinu í búðinni þegar við ákváðum að þetta væri komið gott.

Úff...komin út í langlokublogg núna - er hætt
Over and out

mánudagur, október 23, 2006

Tannlaus

Posted by Picasa

fimmtudagur, október 19, 2006

20 mánaða snillingur

Ég er óóóóógeðslega þreytt í dag, ormurinn sofnaði kl 8 og við foreldrastykkin um 1 leytið. Hann ræsti okkur svo rétt fyrir 6 en sofnaði svo að verða 7....svona bara rétt áður en vekjaraklukkan okkar fór í gang sko! Hann svaf svo á sínu græna þar til að verða 9 en þá reif ég hann upp og klæddi hann gargandi og sparkandi í fötin og hentist út á leikskólann með hann.

Hann var ekkert sérstaklega ánægður þar og borgaði fyrir sig með því að hella úr næstum 2 LÍTRA mjólkurkönnunni yfir allt matarborðið, sig, nærsitjandi krakka, gólfið, diskinn - já, svo ég gleymi nú ekki fulla glasinu sem hann var svo með af mjólk. Þúst, bara svona smá svona út fyrir sjáðu til. Ekki það - ég sat við hlið hans og sömuleiðis "ófaglærður-starfsmaður-leikskóla-sem-má-ekki-kalla-fóstru" sem sat hinu megin. Við gátum engu bjargað því hann var ansi snöggur að þessu. Hann gengur jú hratt og örugglega til verks.

miðvikudagur, október 18, 2006

Major iðjuþjálfun

Haldiði ekki að einkadóttirin og prinsessan þurfi ekki að fara til iðjuþjálfa! Ji, ég ímyndaði mér allt það versta þegar kennarinn tilkynnti okkur þetta - eins og það gæti virkilega eitthvað verið að barninu mínu...óóóó...NEI. Ástæðan sem kennarinn gaf var að hún heldur stundum (lykilorð: STUNDUM) vitlaust á blýanti.

Jebb, iðjuþjálfar hafa víst ekkert betra að gera en að kenna 6 ára ormum að halda á blýanti. Eins gott að vera búinn með massa háskólanám til þess að glíma við þetta mjög svo erfiða og ótrúlega krefjandi verkefni. Þess má kannski geta að einkadóttirin fékk gúmmí-grip (sem ég keypti) til að læra þetta nú örugglega og hefur farið mikið fram síðan þá - á ca. mánuði.

Fyrr má nú aldeilis vera vitleysan.

þriðjudagur, október 17, 2006

Staðan kl 10:44

Ég hélt að hann væri sofandi...silly me! Þetta gerði hann mjög hljóðlega, makaði flórsykrinum vandlega yfir allt gólfið - öllum 500gr. það var ekki korn eftir í pakkanum. GREAT - frekar svona vont að ryksuga flórsykurinn, maður fær annað slagið smá stuð svona af ryksugunni...getum kannski orðað það þannig að hjartað slær alla vega enn.
Já, ég sem sagt ryksugaði flórsykurinn upp og á meðan hann reddaði sér smávegis pappír til að lita á (nb. það var EKKERT á gólfinu nema skáparnir og taflan áður en hann komst þarna að. Posted by Picasa