mánudagur, febrúar 26, 2007

ADHD?

Í dag hlýt ég að vera með athyglisbrest með ofvirkni. Hef endalausa orku og er út um allt - samt einhvern veginn alveg uppgefin af þreytu. Get ekki einbeitt mér að neinu - get ekki lært. Get ekki notað orkuna í eitthvað nýtilegt er bara í vandræðum með sjálfa mig. Gleymi hvað ég er að gera og byrja á svona 2000 hlutum en klára engann þeirra. AAARRRRRRRRRRRR....

...Ætla aðreyna að nýta þetta í að taka til áður en grísirnir koma heim og ræna ALLRI orkunni.

*sparkírass*

laugardagur, febrúar 24, 2007

Kaupa batterí í´ana.

Jebb, ég er alveg batteríslaus. SD vill alltaf kaupa batterí í allt ef eitthvað virkar ekki alveg strax - sjónvarpið t.d. virkaði ekki af því að það var ekki í sambandi og þá átti bara að skjótast í Nettó og redda batteríum.

En alla vega, ég hef verið undarlega þreytt undanfarið og eiginlega bara alveg uppgefin. Hef eiginlega bara borðað, sofið, borðað meira og setið við að læra eða horfa á sjónvarpið. Mér hafði flogið það í hug að hægt væri að sofa þegar maður væri orðinn gamall en hef nú komist að því að þetta virkar ekki svoleiðis. Þegar maður heldur að maður sé OFUR og geti gert allt á engum tíma helst þá kemur þetta bara niður á manni síðar.

Hef bara verið eins og klessa, allt of þreytt og þegar ég er þreytt þá borða ég....endalaust. Er að reyna að komast úr þessum þreytuhjólförum en veit bara ekki hvað þarf til - kemur í ljós. Spurning um að láta tjékka á blóðstatus....þetta er ekki normalt lengur!

Annað sem bætir ekki batterísleysið er OFUR-sonurinn sem virðist hafa endalausa orku. Ég hef tekið eftir því að krakkinn er alveg troðfullur af húmor þó lítill sé hann. Hann t.d. vaknar svona 200 sinnum á nóttu núna.....en bíðið við - ekki grenjandi eða til að vekja okkur ...þannig séð! Heldur einfaldlega BARA til að stríða okkur. Krakkaormurinn vaknar, stendur upp og kveikir ljósið - leggst svo niður og sofnar samstundis. Ég verð að segja fyrir mig að ég er orðin píííínu ponsu þreytt á því að vakna eins og ég hafi lagt mig í sýningarrúmi í stórmarkaði með öll ljós kveikt (flóðlýsing nánast). Ég veit að B. vaknar á móti mér til að slökkva ljósin og er ekkert minna þreyttur á þessu...

Hef reynt að kveikja á nýju flugvélaseríunni hans SD en honum er slétt sama, tók hana meira að segja úr sambandi sjálfur um daginn og kveikti loftljósin. Það virkar ekkert, maður er rétt búinn að loka augunum þegar maður finnur að ljósin eru komin á aftur. - spurning um að taka rafmagnið af herbergjunum....hmmm...?

Til að toppa ALLT þá gleymdum við að taka vekjarann af nýju flottu heimasímunum okkar og vorum því ræst kl 7:20 í morgun...á laugardegi! JEIJ!!!

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Hollt = veik?

Það er svo erfitt að reyna að vera "helþí"

Í morgun áttaði ég mig á því að það væri kannski ekki norm að borða pipp og pepsi max í morgunmat. Krumma sagði mér að sumt fólk æti egg og beikon í morgunmat þegar ég spurði hvað væri hægt að borða á morgnanna sem innihéldi ekki mjólkurafurðir. Ég smellti því eggjum í pott - sleppti beikoninu, það er bara ógeð! Át svo 2 egg eins og ekkert væri, fannst það reyndar pínu svona sleipt og ólystugt en hey, ég reyndi a.m.k.

Mér er sem sagt búið að vera flökurt síðan ég át ógeðis eggin og trúi því ekki fyrir 5 aura að fólk éti þennan hroðbjóð í morgunmat - ekki sjéns. Nákvæmlega það sama gerðist 2 morgna í röð þegar ég reyndi að taka vítamín. Ég skilaði þeim bara aftur...hver ælir þegar hann tekur vítamín? Ég verð bara veik í þau skipti sem ég reyni að gera eitthvað healthy.

Ætli mér sé þá bara ætlað að borða súkkulaði og drekka Pmax í morgunmat?
Jeij, heppin ég þá.

mánudagur, febrúar 19, 2007

Egill Daði!

Smellti mér til Egils Daða fyrir allar aldir á föstudagsmorgni og var yfir helgina, ætlaði reyndar bara að fara ein en svo kostaði nú ekki nema krónu fyrir krakkana svo það var ekki hægt að bera því við að farið hefði verið svo dýrt. Dröslaði því krökkunum í sitt fyrsta innanlandsflug (ja...fyrsta og eina flug yfir höfuð - hans SD) og hélt að það yrði mitt síðasta augnablik.

Soldið svona scary þegar flugþjónninn kemur á hlaupum með plastpoka og rífur kaffibollana af fólkinu í einum grænum og hendir borðunum upp hjá öllum, tilkynnir krökkunum að nú förum við í rússíbana og stendur svo eiginlega ekki í fæturnar - bara rétt hangir í handfarangursgeymslunum. Augnabliki fyrr hafði hann verið að færa krökkunum litabók, liti og svala og allt í góðu.

Það kannast kannski flestir við það þegar flugvélin tekur smá dýfur og maður fær svona nett kitl í magann. Ja, þegar kitlið var búið - þá var vélinn ENN að taka "dýfu" - pínu svona....óspennandi. Hristingurinn var meiri en ég hef nokkurn tíman upplifað. Maður hélt svo að maður væri nokkuð safe þegar glitti í flugvöllinn en ÓÓÓÓ nei. Völlurinn var háll sem áll (og bleyta ofan á í þokkabót) og vélin "slædaði" eftir allri brautinni og ætlaði aldrei að geta stoppað. Var orðin píííínu stressuð þegar ég sá veginn milli Egils Daða og Fellabæjar nálgast.

Erfiðast af öllu var að halda andlitinu fyrir krökkunum sem skemmtu sér svakalega vel, fannst þetta ekkert smá æðislegt að vera í svona rússíbanaflugi. Manni var alla vega hætt að standa á sama þegar flugþjónninn var farinn að panikka.

Fengum svo bara fínasta flug til baka - smá hristingur en ekkert til að tala um...bara þetta venjulega. Héldum upp á 80 ára afmæli ömmu á laugardaginn sem endaði svo í heljarinnar ættar-eurovisionkvöldi. Bara gaman. Hefði reyndar viljað vera lengur fyrir austan en....bara næst!

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Svo spennt...

Ég er svo yfir spennt eitthvað í dag - það ískrar næstum í mér. Hlakka svo til að gera allt að það er eiginlega alveg fáránlegt. Hef margt "á prjónunum" fyrir daginn í dag sem mig langar að framkvæma. Það er reyndar undir öðrum komið hvort það verður að veruleika en sjáum til.

Væri samt til í að einhver sparkaði kannski aðeins í rassinn á mér með að taka til og þrífa fyrir helgina....ég virðist ekki hlakka eins mikið til þess, hvernig sem á því stendur.

En mikið svakalega er notalegt að hlakka svona rosalega mikið til eins mikilla smáatriða eins og í dag.

Kveðja að ofan úr bleika skýjinu...

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Skil ekki

OK, mér finnst svona alltaf svo ógeðslega hallærislegt og glatað og allt það en ég finn skyndilega einhverja massaþörf hjá mér fyrir að tjá mig um eftirfarandi:

Ég er undarlega mikið hamingjusöm í dag....er það reyndar alla daga en dagurinn í dag er eitthvað spes:
1. Mér finnst ég svo ógeðslega heppin eitthvað að eiga svona ógeðslega sætan og fullkominn mann sem kann hugsanalestur - get svo svarið það...maðurinn kemur sífellt á óvart!
2. Ég keypti mér eyrnalokka í dag....var búið að langa í þá í bráðum 2 ár!!!
3. Einn besti pabbi heims á afmæli í dag...MINN
4. Ég er að fara.........

Líkur mömmu sinni ;oP

Jámm, manni finnst nú IKEA-bæklingurinn alls ekki leiðinlegur. Honum finnst kannski komið nóg af borðstofuborðinu og stólunm sem eru að syngja sitt síðasta - kominn tími til að finna nýtt.......og einhvers staðar verður maður að byrja. Hálf pínlegt samt þegar manni er bent á það af 2 ára gormi.
Dót til að raða er ekkert skemmtilegt...en það eru hins vegar matarílátin sem eru í einni eldhússkúffunni. Magnað alveg hreint hvað hægt er að dunda sér lengi svona.
Posted by Picasa

mánudagur, febrúar 12, 2007

Make-up!

OK, er einhver til í að segja mér hvaða meik þau nota í eurovision? Bara svo ég viti hvaða meik ég á ALLS EKKI að kaupa!! APPELSÍÍÍÍÍÍÍNUGUUUUUL!

Btw. einhver annar en ég sem tekur eftir því að hún Heiða er barasta alveg eins og hún Allison í Melrose place? sjáiði bara!

föstudagur, febrúar 09, 2007

Illt í heilanum...

Alveg merkilegur þessi *bííííp* latibær, þvílíkur heilaþvottur. Ég t.d. get ekki náð þessu úr hausnum á mér...

Dibbididí já trúðu mér
Bibbidíbú þú sérð nú
ljósið er kveikt - það er ekkert hér,
gufaði upp - allt horfið er

ooohhh...svo illt í heilanum núna!

mánudagur, febrúar 05, 2007

WHAT?

Var að fatta að fröken Rachel Ray (þátturinn sem ég horfi á meðan ég brýt saman þvottinn) heitir ekkert Rachel - heldur Rachael.....RÍDIKJÚLÖSSSSS.....

Veit ekki hvort ég hef það af að horfa á hann aftur.