Var í sakleysi mínu að skoða fréttirnar á mbl.is þegar ég rek augun í rúmlega 3 ára gamla frétt....og það á FORSÍÐUNNI. Hugsaði fyrst hvort mbl.is væri að fara yfir um og birti eldgamlar fréttir innan um nýjar. Næsta hugsun var hvurn andskotan þeir væru að draga þetta upp aftur - kannski til þess að allir þvertittlingarnir á mbl sem blogga ekki um neitt nema fréttir, gætu jésúað sig í bak og fyrir og talað um að réttast væri að hengja strákgemlinginn upp í ljósastaur á punghárunum...
Well....enn og aftur sá ég ljósið - fréttin er ný!!
Kikkið á fréttina hérna og þið sjáið hvað ég meina
Annars er ég alveg þaulvön þessum fréttum, kannski ég tjékki á Íslendingabókinni hvort einhver fæddur seint í mars 1990 sé skyldur mér.
fimmtudagur, mars 29, 2007
Duglegur að dunda sér!!!
Komst aaaðeins í snyrtidótið inni á baði - búinn að meika sig og lita með maskara á varirnar - smá skyr-meik líka
Búinn að troða sér í peysuna hennar LK og síðan ofan í einn af kössunum utan af nýju eldhússtólunum okkar.
Með límeyrnalokk á enninu - að hoppa í nettópoka.

fimmtudagur, mars 22, 2007
Pæl dagsins.
Ég er eitthvað svo viss um að við séum ekki bestu nágrannar í heimi. Við erum frekar hávær svona en það á samt að vera ein besta hljóðeinangrun hérna á landinu...
...en það breytir því þó ekki að nágrannarnir fyrir neðan okkur eru búin að setja á sölu!!.....he...hehh...vona bara að það sé ekki okkur að kenna.
Held samt að ég gleymi aldreiiiiii einu úr L12.
Við fluttum auðvitað fyrst í leiguíbúð í vesturbænum (B7) og mér fannst hún alltaf svo ógeðsleg eitthvað að ég held að við mamma höfum farið með 20 Ajax brúsa, 5 MrPropper, 1 brúsa af Þrif og 1 af klór svona í fyrstu umferð. Ég notaði svo alltaf VEL af sápu á allt - við gátum ekki einu sinni drukkið vatnið úr krananum því það var svo viðbjóðslegt. Kom oft brúnt, jafnvel grænt og þurfti að láta það renna mjööööög lengi. Sóttum grínlaust alltaf vatn heim til m&p á meðan við bjuggum þar.
Var alla vega orðin vön því að nota bara sem mest af sápu - helst sem stóð á antiseptisc. Well, við fluttum svo í L12 sem var muuun snyrtilegri íbúð en ég hélt auðvitað áfram að nota sápu í tonnatali þar til einn daginn.
Nágrannakona okkar (gömul kella) fyrir neðan okkur bankaði hjá okkur og spurði hvort ég væri að þvo þvott. Ég neitaði því auðvitað því ég hafði ekkert verið að þvo neitt í þvottavélinni en spurði hana hvers vegna hún vildi vita það. Hún sagði orðrétt og ég gleymi því aldrei: "Ég er bara í vandræðum hérna niðri, Þvottarhúsvaskurinn OG!! eldhúsvaskurinn eru fullir af sápufroðu - kannski ögn meira í þvottarhúsinu - ég er viss um að einhver er að þvo þvott hérna og það er eitthvað bilað því þetta er að koma upp um niðurföllin hjá mér. Það var byrjað að koma upp um niðurfallið í gólfinu á þvottarhúsinu þegar ég fór hingað upp".
Ég, svona líka steinhissa á þessu ætlaði varla að trúa kerlingunni. Man að ég sagði eitthvað eins og "jiiii, ertu að meina þetta, já það hlýtur eitthvað að hafa bilað fyrst froðan kemur upp hjá þér" og kerlingarálftin hélt áfram "já, ég er búin að reyna að troða töppunum í vaskana en þeir halda ekkert, froðan ýtir þeim bara strax upp - ertu ekki til í að athuga hvort það sé eitthvað komið hjá þér?" Jújú, ég var nú heldur betur til í að athuga það og hljóp að mínum vöskum og tjékkaði. "Nei ekkert hjá mér"
Kerlinginn gargaði þá: "JA, þá er þetta hann Þórir, ohhhh - þessir karlmenn sko - jæja, ég ætla að fara og ræða við hann Þórir - hann verður að fara að láta kíkja á þessa þvottavél sína"
Ég kvaddi kerlinguna og sagðist vona að hún fyndi eitthvað út úr þessu. Lokaði hurðinni og það var þá sem ég sá ljósið!
Ég hafði verið að vaska upp rétt áður en kerlingin kom og verið að þrífa fullt af hlutum með uppþvottalegi sem ég sprautaði bara jafn óðum á þá - var sem sagt ekki með tappann í og vatn í vaskinum heldur þvoði alltaf bara hvern og einn hlut svo ég notaði augljóslega meiri sápu en vanalega.
Daginn eftir var ég búin að gleyma þessu ....eða alveg þar til ég mætti þvottavélaviðgerðarkarlinum í stigaganginum....sem var á leiðinni til Þóris.

miðvikudagur, mars 21, 2007
Ekki svo töff
Þegar ég var lítil hugsaði ég alltaf þegar mér var bannað að gera e-ð að ég ætlaði sko að verða rosa líbó mamma þegar að því kæmi. Ég ætlaði sko að leyfa helling og miklu meira en það. Það átti líka að mega vera drasl í barnaherbergjunum og engin verkefni takk fyrir, bara að leika sér sko. Hugsaði að ég færi e.t.v. eftir útivistarreglum en það yrðu sko aldeilis engar aukareglur - svona reglur hússins um hvenær ætti að koma inn.
Ég ætlaði líka að vera ógeðslega töff mamma, alltaf í hælaskóm og gott ef sú pæling slefaði ekki bara í stripparastígvélin sem ná reimuð, upp yfir hné. Hárið átti auðvitað að ná niður að hnjám en samt með perfect krullum. Ætlaði líka alltaf að vera perfectly stífmáluð-gott ef hugmyndin náði ekki yfir feik augnhár líka.
Staðreyndin er hins vegar sú að ég er stífari en allt stíft. Er löngu búin að ákveða húsreglur hér um útivistartíma á kvöldin...svona þegar þar að kemur. Lögboðinn útivistartími verður virtur og gott betur en það - mér er sama þó "allir" fái að vera lengur. Hér er heldur ekki leyfilegt að svara fullorðnum dónalega, það á að hlýða og það strax. Hér skal tekið til í herbergjum þegar ég segi og hjálpað til ef þess þarf. Ég sem sagt er alls ekki slakari en foreldrar mínir, ef eitthvað þá er ég ögn stífari en þau voru - sem sagt, bara nokkuð gott foreldri að mínu mati (don´t worry - ég er laaaaaaaaangt frá því að vera fullkomin...geri bara mitt besta)
Önnur staðreynd og kannski öllu verri en hin er sú að ég er alls ekki töff. Ég á ekki einu sinni gúmmístígvél hvað þá meira. Ég nenni ómögulega að mála mig eitthvað að ráði nema við sérstök tilefni og man alive - ég er aðeins þyngri en mömmuímyndin sem ég hafði í huga þegar ég var 5 ára. Ég hef engan tíma í að krulla hárið all the time eða annað svona rugl.
Það skiptir mestu máli að líða vel og þar eru sketchers á heimavelli - algjörlega hælalausir með öllu takk för. Það að vera ekki töff er að sjálfsögðu ekkert issjú fyrir mig nema að því leitinu til að MAMMA er svona 13 sinnum meira töff en ég og hefur alltaf verið. Ég er enn að laumast í fataskápinn hennar ef mig vantar eitthvað flott við sérstök tilefni. Vildi að ég væri jafn mikil pæja og mamma - fyrir mér er hún dökkhærða útgáfan af Gwen Stefani, svo ótrúlega flott á sinn eigin hátt - engin steríótýpa - bara heill hellingur af dömulegu töffi.
Ég ætla ekki einu sinni að minnast á hann föður minn sem skvísurnar á leikskóla sonarins héldu að væri maðurinn minn. tjahh...ég hef nú oftast verið talin yngri en ég raunverulega er(svona útlitslega alla vega) en....COME ON...! Spurning um að gera eitthvað í málinu...
...en ég þekki sjálfa mig nokkuð vel svo hvað geri ég í málinu? ....Nákvæmlega EKKI NEITT!
Ég ætlaði líka að vera ógeðslega töff mamma, alltaf í hælaskóm og gott ef sú pæling slefaði ekki bara í stripparastígvélin sem ná reimuð, upp yfir hné. Hárið átti auðvitað að ná niður að hnjám en samt með perfect krullum. Ætlaði líka alltaf að vera perfectly stífmáluð-gott ef hugmyndin náði ekki yfir feik augnhár líka.

Staðreyndin er hins vegar sú að ég er stífari en allt stíft. Er löngu búin að ákveða húsreglur hér um útivistartíma á kvöldin...svona þegar þar að kemur. Lögboðinn útivistartími verður virtur og gott betur en það - mér er sama þó "allir" fái að vera lengur. Hér er heldur ekki leyfilegt að svara fullorðnum dónalega, það á að hlýða og það strax. Hér skal tekið til í herbergjum þegar ég segi og hjálpað til ef þess þarf. Ég sem sagt er alls ekki slakari en foreldrar mínir, ef eitthvað þá er ég ögn stífari en þau voru - sem sagt, bara nokkuð gott foreldri að mínu mati (don´t worry - ég er laaaaaaaaangt frá því að vera fullkomin...geri bara mitt besta)
Önnur staðreynd og kannski öllu verri en hin er sú að ég er alls ekki töff. Ég á ekki einu sinni gúmmístígvél hvað þá meira. Ég nenni ómögulega að mála mig eitthvað að ráði nema við sérstök tilefni og man alive - ég er aðeins þyngri en mömmuímyndin sem ég hafði í huga þegar ég var 5 ára. Ég hef engan tíma í að krulla hárið all the time eða annað svona rugl.Það skiptir mestu máli að líða vel og þar eru sketchers á heimavelli - algjörlega hælalausir með öllu takk för. Það að vera ekki töff er að sjálfsögðu ekkert issjú fyrir mig nema að því leitinu til að MAMMA er svona 13 sinnum meira töff en ég og hefur alltaf verið. Ég er enn að laumast í fataskápinn hennar ef mig vantar eitthvað flott við sérstök tilefni. Vildi að ég væri jafn mikil pæja og mamma - fyrir mér er hún dökkhærða útgáfan af Gwen Stefani, svo ótrúlega flott á sinn eigin hátt - engin steríótýpa - bara heill hellingur af dömulegu töffi.

Ég ætla ekki einu sinni að minnast á hann föður minn sem skvísurnar á leikskóla sonarins héldu að væri maðurinn minn. tjahh...ég hef nú oftast verið talin yngri en ég raunverulega er(svona útlitslega alla vega) en....COME ON...! Spurning um að gera eitthvað í málinu...
...en ég þekki sjálfa mig nokkuð vel svo hvað geri ég í málinu? ....Nákvæmlega EKKI NEITT!
þriðjudagur, mars 13, 2007
LK...alltaf snillingur!
LK var að skrifa sögu um fjölskylduna sína fyrir skólann. Það átti svo að teikna mynd sem átti að fylgja sögunni. Á meðan hún teiknaði myndina við eldhúsborðið hengdi ég upp þvott inni í stofu (fyrir framan TV-ið auðvitað). Skyndilega kallaði LK:
LK: "Mammaaaa, stendur 23 á bolnum þínum?"
ég: "ha, neinei - það stendur ekkert á honum"
LK: "æji nei ekki þessum - heldur bleika þarna..."
ég: "bleika? 23? neineinei"
*skyndilega mundi ég*
ég: "ehhh...LK, ekki ertu að teikna mig í bleika netabolnum?"
LK: "júbbs - stendur 23 á honum?"
ég: "nei það stendur....uhhh...eða jú ætli það standi ekki bara 23 á honum núna"
GAAALÆÆÆTAN að ég láti krakkann teikna mig í skólabókina sem kennarinn fer yfir - í netabol sem stendur "69" á. DON'T THINK SOOOOO!!!
Arrrggghhh...ég á svona 200 boli, hvernig í fjandanum man hún eftir ÞESSUM - N.B - ég er eiginlega aldrei í honum og fer sko aldrei nokkurn tíman út úr húsi í honum.
KIDS!!!

Peysan búin
leikskóli or not?
Spurning hversu gott það er fyrir skæruliðann að vera á leikskóla. Í þessum rituðu orðum er hann með banana að skjóta - áðan tók hann garnafganga og "skaut" þeim út um allt. í gær tók hann vaxlitakassann og hljóp út um allt og kastaði alltaf ca. einni lúku af vaxlitum út í loftið um leið og hann öskraði "SPRENGJAAAA".
Maður er pínulítið svona þreyttur eiginlega...þessir fjandans vaxlitir komast undir og á bak við allt.

mánudagur, mars 12, 2007
Úfff! (leiðinda færsla)
Við SD erum búin að vera veik forever að mér finnst. Held að ég hafi bara ekki lent í öðru eins, er eiginlega hálf uppgefin eftir þessa síðustu viku. Hélt reyndar að ég væri orðin betri á laugardaginn en var svo ENN með hita í gærkvöldi. Svaf svo takmarkað í nótt fyrir kvefi sem nær alveg upp í heila.
Til að leiðrétta smá misskilning sem upp hefur komið, þá finnst mér Sálin alveg æðis en þegar textarnir innihalda orðið "frelsa" oftar en 23 sinnum þá bara...úfff...ekki fyrir mig takk.
p.s. Ég er ennþá ógeðslega fúl - prjónablaðið er bara CRAP! ohhh...ljótu ljótu uppskriftir...

þriðjudagur, mars 06, 2007
Er að spila út *spenningur*
Hlakka svo ógeðslega til á morgun....þá kemur út nýtt prjónablað. Er alveg að verða búin með peysuna.....jeij.
What a day!
Fékk pólverjana á svalirnar í dag....þeir áttu að koma í ágúst...síðasta lagi sept! IDJOTAR að sjálfsögðu, löguðu ekkert bara "fiffuðu" aðeins til svo maður tæki ekki eins eftir misfellunum sem þurfti að laga.....garg - nú þarf ég að gera mér fer í hfj til að tala við íslenskumælandi starfsmann þessa fyrirtækis og útskýra fyrir honum að ég sé ekki hálfviti og sjái í gegnum svona punt-lagfæringar.
SD var veikur heima í dag...fór sem sagt ekki í leikskólann. Fer sennilegast ekkert á morgun heldur. Ég ætlaði því að leyfa honum að horfa á sjónvarpið aðeins...smella smá söngvaborg eða álíka í tækið þar sem hann lá í móki í sófanum en nibb, þá sprakk eitthvað í sjónvarpinu og það er ónýtt takk fyrir pent! Bara Game over.
Eins frábær og dagurinn var orðinn þá var enn hægt að bæta um betur - SD tók sig til og fjarlægði alla 5 prjónana úr peysunni sem ég var að prjóna og togaði svo hratt og örugglega nokkrum sinnum í garnið þannig að hann náði að rekja upp allt helvítis stroffið sem ég var búin að gera í hálsmálið. Þegar ég var að laga þetta aftur fann ég að ég var eitthvað ekki eins og ég átti að vera og jújú....ég komin með hita...ÆÐI!
Vona að morgundagurinn verði betri
Annars á Steinar pínu ponsu "litlasti" bró afmæli á morgun (tæknilega séð í dag). Ég trúi því ekki að hann sé að verða 20 ára - þetta "litla" grjón. Finnst eins og hann hafi fæðst fyrir alls ekki meira en 10-11 árum.

föstudagur, mars 02, 2007
Blog tileinkað Krummu skvís!
Heyrðu, þetta er allt að reddast með helgina.
manstu, ég sagði að helgin færi í veikindi
kl 16:04 mældi ég orminn með 38°C (og helgin þá formlega hafin)
Verst að ég á ekki inni svefnpunkta - EN þetta reddast.
ps. ég bókstaflega ÞOOOOLI ekki þegar ég hef rétt fyrir mér

long time - no phonecall!
Held að ég hafi ekkert talað við mömmu í gær, ómögulegt alveg. Þar af leiðandi vissi ég ekki að hún yrði í vinnunni í dag. Ég hringdi eins og "meiníak" í heimasímann og þegar það var orðið nokkuð ljóst að enginn myndi svara byrjaði ég á GSM. Ég hringdi og hringdi og hringdi og var að fara að skella á þegar mamma svaraði í símann, gott ef ég greindi ekki agnar pirring í röddinni:
ma: JÁ HÆ!!!
ég: hæ mamma...e (mamma grípur frammí fyrir mér)
ma: ég er í VINNUNNI! Ég heyrði bara í símanum hringja hérna í skápnum....ENDALAUST!
= Ég er ekkert sérstaklega þolinmóð!

fimmtudagur, mars 01, 2007
Þreytt? ÉG? neeeei...
Hversu þreyttur er maður þegar maður sest við matarborðið og hellir úr kókflöskunni í pínulitla skál, fulla af sósu??
Hversu þreyttur er maður þegar maður setur after shave karla krem á tannburstann.
og
Hversu þreyttur er maður þegar maður fattar vitleysuna að ofan, nær sér í tannkrem og setur á tannburstann en rétt áður en hann hittir í munninn fattar maður að þetta er alls ekki eigin tannbursti....heldur Shrek tannbursti sonarins...
Toppið þetta!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)