Sko! Um daginn átti SD að fara að sofa, hann gat ómögulega sofnað í sínu rúmi svo hann fékk fyrir náð og miskunn að sofna í mínu rúmi...eða svoleiðis átti þetta að vera. Þegar ég kíkti á hann var hann reyndar sofnaður en hann hafði aaaaðeins komist í skóladótið mitt...

Annað kvöld, stuttu síðar fékk hann einnig að sofna í mínu rúmi, Hrafnhildur kom í heimsókn til mín svo ég setti hann inn í rúm, kyssti hann góða nótt og bað hann um að fara strax að sofa. Eftir 5-10 mín heyrum við hrikalegan dynk í ofninum í herberginu. 4 sek. síðar öskraði gormurinn. Tók hann fram og spurði hvað hann hefði eiginlega verið að gera þar sem hann lenti með hnakkann á ofninum. "hoppa" svaraði hann. Við Hrafnhildur vorum að reyna að sannfæra hann um að það mætti ekki hoppa í rúminu þegar hann viðurkenndi að hann hefði verið að fara í HANDAHLAUP! uppi í rúmi og þess vegna lent á ofninum. Munaði litlu að húðin hefði sprungið á kúlunni...hjúkk.
En jæja, ég leit af honum í hálfa mínútu um daginn og kom að honum þegar hann var búinn að klára sólarvörnina úr brúsanum...

Í morgunn átti hann svo að fara í leikskólann en það gekk frekar erfiðlega að koma honum á lappir. Með ofursætu og mjúku röddinni sinni bað hann mig að kúra aðeins með sér í rúminu áður en hann færi á fætur....hvernig segir maður nei við því? Ég lagðist uppí og bað hann að lofa mér að fara þá strax í föt þegar ég segði til. Jújú hann var til í það. Needless to say...þá sofnuðum við bæði og vöknuðum ekki fyrr en það var orðið of seint að fara í leikskólann. Sem er kannski ekkert slæmt fyrir utan það að hann vaknaði á undan mér...
Þegar ég rauk frammúr eftir að fatta að hann væri farinn, fann ég hann í herbergi systur sinnar enn einu sinni. Hann hafði "puntað" sig aðeins og var með varagloss, augnskugga og lím-eyrnalokka. - alltaf að herma eftir stóru systur sko...
Stuttu síðar tek ég eftir að það var eitthvað fleira skrítið, birti hér mynd með og bið ykkur um að giska á hvað er öðruvísi... (hægt er að klikka á myndina til að fá hana stóra)
Fyrir utan svo auðvitað að hann fór greinilega á fætur í nótt...EINN og kveikti ÖLL ljós. Ég hafði um kvöldið brotið saman þvílíkt fjall af handklæðum sem ég átti bara eftir að setja inn í skáp, þau voru vel og vandlega tekin í sundur og lögð eins og teppi um alla stofuna og ganginn...ÆÐIS!