miðvikudagur, desember 27, 2006

Nenni ekki netinu núna...

...en vona að þið hafið haft það gott um jólin, ég ætla alla vega að halda áfram að hafa það gott og hvíla tölvið. Sendi hér með mynd af einni af uppáhaldsgjöfinni sem ég fékk. Love her...
Ef nafnið mitt stendur ekki á henni þá veit ég ekki hvað - og hún hefur sko fengið að vinna fyrir sér þessa 2 sólarhringa...

fimmtudagur, desember 21, 2006

Stutt blogg - er lasin...enn og aftur

Út um eldhúsgluggann
Jólalegt eða hvað???
Posted by Picasa

laugardagur, desember 16, 2006

Vanþakklát?

Hvað sem ég fæ nú í jólagjöf þá ætla ég bara að biðja fólk um að gefa mér EKKI svona. Ég tel mig nú ekki vera vanþakkláta varðandi þær jólagjafir sem ég fæ en sá sem gefur mér svona í jólagjöf fær að sjá eftir að hafa ekki átt eina slíka sjálfur! áður en það varð of seint.



hér má svo sjá auglýsinguna!

mánudagur, desember 11, 2006

Sætastur sætastur...

 

 

 
 Posted by Picasa

Hann var að fá þessa nýju rándýru húfu. ull að utan, bómull að innan og bólstruð að framan. Þessa hjúmongus þykkustu húfu ever er hægt að fá með föstum mánaðarlegum afborgunum hjá íbúðalánasjóði.

...ok, smá grín - keyptum hana í Hagkaup á 3500 kall takk fyrir þeinkjú verrí möts!!! Hún var merkt með letri fyrir þá sem sjá illa, blindraletri og innbyggðum lesnum skilaboðum ásamt 2 ástraujuðum eðalmiðum frá Merkt svo hún ætti alla vega ekki að týnast.

Tryllt!

Er að tryllast úr spenningi hérna. Aðallega vegna þess að jólasveinninn kemur í fyrsta skipti í kvöld og mér finnst þetta svo gaman. Finnst þessi bilaða trú svo æðisleg. Það barn sem lýgur því að mínu að jólasveinninn sé eitthvað plat fær að sjá eftir því!!!

Er pínu þreytt á að sussa á fólk sem fer að tala um þegar ÞAÐ gaf einu sinni í skóinn í 140 desibelum svo örugglega öll eyru nái þessum upplýsingum. PASSA SIG TAKK!!! Hér vitum við að þeir sem hafa ÞURFT að gefa sínum börnum í skóinn eiga bara óþæg og illa upp alin börn. Það er JÓLASVEINNINN sem gefur í skóinn og ENGINN annar...ekkert plat neitt.

PUNKTUR!

miðvikudagur, desember 06, 2006

Afmælissöngurinn - eitt eða tvö erindi??

Er ekki bara hægt að ákveða í eitt skipti fyrir öll hvort afmælissöngurinn eigi að vera 1 eða 2 erindi? Fólk byrjar yfirleitt að klappa eftir fyrsta á meðan 2-3 halda áfram með sönginn...sem verður ferlega vandræðalegt eitthvað.

Spurning um að hafa 2 erindi upp að ákveðnum aldri því svo vill maður ekkert sérstaklega heyra hversu gamall maður er - verður meira svona eins og hæðnissöngur þegar kemur "hann er fjörtíuogtveggjaára í daaaag..múhahaha". Annars nei - bara hætta þessum söng eftir ca. 10 ára eða svo (mætti reyndar mín vegna bara hætta þessu komplett).

Og svona að lokum....PLÍÍÍÍS, ekki garga "húrra..húrra..húrraaaaa" á eftir - það er eitthvað svo hallærislega sænskt - svona emil í kattholti gamalt.

Weird pæling kannski en spannst upp frá því að LK fékk boðskort í afmæli enn einu sinni.

Karlmenn og synir þeirra?

Ég hef oft velt þessu fyrir mér og þá oftast þegar ég sé "svona" menn. Mér finnst nefnilega svo skrítið að þegar sumir karlar eignast stráka þá fer þeim að finnast töff að vera í eins fötum og þeir. Frúin á heimilinu prjónar t.d. eins norskar peysur á feðgana eða álíka. Yfirleitt erum við að tala um hallærislegustu flíkur sem til eru. Hvað fær karlmenn til að langa allt í einu í norska prjónapeysu??

Annars finnst mér þetta orðið svo algengt að ég keypti eins langerma boli á feðgana á þessu heimili...bara eins og ég væri að drekka pepsi (sjaldnar sem ég drekk vatn sko)- mér fannst þetta svo eðlilegt. Þeir eru líka voða glaðir með þetta en ég held að það sé nú aðallega vegna þess að bolirnir eru flottir og eiga ekkert skylt með norskum prjónapeysum eða flónelskyrtum.

Ég hefði seint farið að kaupa eins boli, hvað þá prjóna eins peysur - á þau feðginin LK og B. Það er ekki enn komið í tísku að vera eins og dóttirin. Er þetta eitthvað sér karlagens dæmi eða?

B má þó þakka fyrir að fólkið í hverfinu er ekki mikið fyrir eins krumpugalla, flíspeysur og aðrar eins hallærisflíkur því ég er svo meðvirk að það væri aldrei að vita nema ég kæmi heim úr einni búðarferðinni með svoleiðis pakka...ekki það, ég færi auðvitað aldrei í þetta en að kaupa einhvern óþarfa er allt annar handleggur.

Vanish Chrystal white

Ég hata Vanish auglýsingar! Krakkinn(sá eldri) apar þetta upp og tuðar ef hún sér minnsta blett einhvers staðar. Kom heim úr skólanum um daginn og gargaði með áhyggjufullri röddu hvort við ættum ekki örugglega Vanish. Þegar ég svaraði að ég væri nýbúin að kaupa það heyrðist frá henni: "HJÚKKET, Ég sullaði óvart smá sósu á buxurnar mínar í skólanum en það er þá allt í lagi fyrst við eigum "Veldu bleikt - veldu Vanish og segðu bless við blettinn" - alveg með auglýsinguna upp á 10 takk fyrir í endurflutningi.

URG...nú gengur þetta orðið undir nafninu "segðu bless við blettinn" hér á heimilinu og er notað óspart því ormunum finnst það nú ekkert tiltökumál að sulla niður, því við eigum jú "veldu bleikt, veldu vanish og segðu bless við blettinn" og ekki vandamálið að láta kellinguna standa bara við þvottabalann að nudda inni í þvottarhúsi all day.

Helvískar auglýsingar!


...verð samt að viðurkenna, ég keypti þetta hvíta helv&%$ Vanish úr auglýsingunni þar sem "skyrtan mín er ekki grá, hún er HVÍÍÍÍT" kemur fram. Setti þetta í hvíta(gráa) adidas peysu sem SD á/átti - ætlaði að henda henni en þetta virkaði svo djöf/&%$ vel að ég "neyðist" til að láta krakkann nota peysugarminn áfram, sem er nú eins og ný.

mánudagur, desember 04, 2006

Krúttlegt!




Við fengum hana Berglindi í heimsókn um daginn. Eins og sést er hann týpískur karlmaður og er sko alveg sama þó hún sé aðeins að laga hann til. Hann er "ponsu" egóisti og hefur engar áhyggjur af neinu en er aftur á móti MJÖG ánægður með að það sé verið að taka myndir af honum...en ekki hvað

sunnudagur, desember 03, 2006

Pepsi í heimsendingu!

Langaði stjarnfræðilega í Pepsi áðan...og í allan morgun.

Nennti ekki út því ég var og er enn á "nátt"fötunum.

Fékk Pepsi heimsent frá Nettó ásamt smá nammi. Sendillinn heimtaði sleikjó og afganginn af peningnum fyrir sendilsstörfin. Sendillinn er Lára Kristín!

Mikið svaaakalega er þægilegt að eiga börn.

Þyrfti kannski að fara betur yfir það með henni hvernig maður þrífur íbúðina en læt það bíða, gef henni frí í dag fyrst það er sunnudagur.

föstudagur, desember 01, 2006

Athyglisbrestur?

Get svo svarið það - ég hlýt að vera með athyglisbrest!