föstudagur, ágúst 31, 2007

Tóm gleði og hamingja!

Jákvætt:
*Enginn lasinn. Allir hressir
*Tölvan mín líklegast í lagi, búið að ná gögnunum af henni og þá á bara eftir að setja hana aftur upp.
Diskurinn til þess...sem var týndur, er fundinn - svo nú er bara að setja það í gang.
*Búin að arga út lengra leikskólapláss - frá og með þriðjudegi.
*Símabatteríið mitt er komið í viðgerð.

Í biðstöðu:
*Stundaskráin, er að bíða eftir endanlegum stundaskrám...ekki drögum takk. Þarf svo að raða henni upp fyrir þessa önn.
*Erum á lánsbíl, okkar fór í ábyrgðarskoðun í gær en kom ekki heim aftur eins og áætlað var. Skoðunargaurarnir rústuðu einni fínu felgunni okkar svo...nú er bara að bíða og sjá hvort þessar felgur séu nokkuð hættar að fást. Hvernig þeir fóru að þessu er ómögulegt að segja....svona ef einhver var að spekúlera...

Neikvætt:
Ekkert í bili...

*update* at 17:24
Lánsbílnum skilað og ný felga komin undir.
Stundaskráin komin langt á veg 75% tilbúin.
*update* at 21:22
Tölvan mín startaði sér loksins...jibbý...allt í áttina
Posted by Picasa

þriðjudagur, ágúst 28, 2007

óþolandi...

SD vaknaði í morgun og sagðist vilja fá eitthvað að borða, ég bauð honum eggjabrauð sem hann þáði. Honum hefur greinilega fundist það hálf lélegt hjá mér því hann bað mig um að baka köku í dag ....spes!

SD vildi svo leika með eldhúsdótið sitt og fá vatn í pott sem hann á. Ég sagðist ekki geta hjálpað honum en bað hann um að fara bara sjálfan inn á bað og ná sér í svolítið vatn. Eitthvað fannst honum það nú léleg þjónusta og sagðist ekki vilja sækja vatnið sjálfur. Ég sagðist þá ekki geta komið fyrr en eftir 10 mínútur. Hann skildi pottinn eftir og labbaði fúll í burtu...

...og sagði "ohhh...óþolandi alveg" - einn 2ja ára alveg að verða 16 ára.

Ætli við smellum samt ekki í eina köku, hann er nú einu sinni lasinn heima og þá ræður maður smá :P

mánudagur, ágúst 27, 2007

Grenjjjj

Er voðalega eitthvað þreytt-pirruð í dag.
Búin að vera lasin, er heima með einn lasinn.
Tölvan mín líklegast ónýt og skólinn að byrja.
Ekki búin að fá svar frá leikskólanum
Símabatteríið mitt enn bilað
Allt í stíl.

Ekkert myndablogg þar sem ég hvorki kann né nenni að föndra myndir inn á þessa tölvu.
AAAAaaaarrrrgggghhhh...

mánudagur, ágúst 20, 2007

Lífið gerist ekki betra...stundum.

Gleði dagsins: Fyrir utan allt æðis í færslunni fyrir neðan þá hef ég uppgötvað mér til mikillar ánægju að það er komið út nýtt prjónablað. GLEÐI GLEÐI - get ekki beðið eftir að skoða það á miðvikudaginn.
www.tinna.is

Svekk dagsins: keypti Rommý súkkulaði sem mig var búið að dreyma um í marga daga í Select í morgun. Svekkelsið er að það rann út 14. JÚNÍ 2007. Ojjjjjjjjjjj...kvartar maður líka yfir þessu? Mér finnst eitthvað svo óttalega mikill kvartari í mér þessa dagana.
Mig langar helst til að keyra spes ferð niður á select og neyða afgreiðslupíuna til að éta útrunna ógeðis-rommýið - tjahh, eða í það minnsta kasta því ógeðslega fast í hausinn á henni. Kannski fattar að tjékka á dagsetningunum eftir það.

Annars er allt í gúddí

Freak out! æðis...

Æj...það er svo leiðinlegt að hafa svona neikvæða færslu efsta svo ég smelli inn einni í jákvæðari kantinum.

Ætla að fara á bæjarskrifstofuna í seinni parti vikunnar. Hef ekki tíma til þess núna. Ætla kvarta hátt og örugglega, - ef þau hlusta ekki á mig þá tek ég B. með...hann getur verið svo ógó frekur við ókunnuga :P Hann byrjar alla vega í skólanum á morgun og LK næsta dag....Jæks, tíminn flýgur.

Ætla líka að arga á símafólkið í vikunni, því nýji krúttaði bleiki síminn minn er barasta ALLTAAAF batteríslaus. Hann á að endast í 300klst í bið sem mér reiknast til að séu 12 og hálfur dagur. Hann dugar rétt 1 og hálfan dag svo ég veit ekki hvert þessir 11 fara? Ég tala alveg oft og mikið í símann en common, ekki svoooona mikið.

Hmm, ég sem ætlaði að hafa þetta voða jákvætt eitthvað...eitthvað ekki alveg að gerast.

Hlakka voða mikið til vikunnar, hlakka til að skipuleggja stundaskrá fjölskyldunnar sem verður þétt skrifuð þessa önnina. Hlakka til að fylgja LK í skólann og nú í 2. bekk. Hlakka alveg óskaplega til að hitta hana Úrsúlu Möndu mína og get ekki beðið eftir að kíkja á nýju íbúðina hennar Brynju í Keflavík. Er spennt fyrir því að byrja aftur í skólanum...ef leikskóla-deild Kópavogs lengir plássið hans SD...sem þau GERA (þegar ég verð búin að tjá mig). Hlakka til að gera haust-þrifin fyrir skólann og hlakka meira að segja til að þvo þvottinn.

Er alveg fáránlega spennt og glöð eitthvað núna. Meira að segja með svona fiðrildi í maganum (át þau samt ekki). Allt er æðislegt....a.m.k. í bili (bið ekki um meira) :P

Stay tuned for the next episode of "bæjarskrifstofur og síminn"
Veif...ein í ruglinu :D

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

Er virkilega gott að búa í Kópavogi?? HA, Gunnar??

Mér sýnist fólk vera hætt að skoða þessa síðu sem er kannski ágætt, ég get þá brotið loforð mitt um að blogga ekki meira. Er bara andskotans pirruð á öllu núna og þarf útrás ef heimilisfólkið á ekki að fá að finna fyrir því þegar það fer að skila sér heim.

Nú sótti ég um lengingu á leikskólaplássi ungans í FOKKINGS JANÚAR. 8 mánuðum síðar er ég ENN að bíða! 8 MÁNUÐIR!! Ef ég væri í vinnu þar sem ég hefði þurft að auka við vinnutímann þá væri búið að reka mig fyrir lifandis löngu. Ég er ekkert að biðja um að krakkinn sé til hálf sex neitt heldur bað ég um lengingu frá 14:00-16:00. Sem er nú bara á normal vinnutíma fólks. Barnið verður ekki einu sinni alla daga til 16, heldur eingöngu þá daga sem stundataflan mín er svona löng.

Er virkilega ekki hægt að redda þessu á 8 mánuðum. HA? Gunnar Birgisson...care to explain? Til þeirra sem ekki vita þá er þetta ekki í fyrsta skipti sem ég er að bíða eftir leikskólamálum í Kópavogi....og ekki annað og ekki það þriðja. Ég sendi nokkuð harðort bréf á leikskólastjórann og fékk bréf með vælutón til baka um að enginn starfsmenn fengjust og væli væl. Ég er orðin ónæm fyrir þessu væli og rugli. Hlusta ekki á svona djöfulsins bull, ég vil bara svör...Í GÆR! Nú í dag eru 4 dagar í að skólinn byrji hjá B., 5 dagar í að skólinn byrji hjá LK og 17 dagar í að minn skóli byrji. Það er fresturinn sem K.bærinn hefur til að svara mér.

Búin að fá nóg!

I'm patient but this is stretching it.

sunnudagur, ágúst 12, 2007

ENJOY IT



Í dag var ég búin að ákveða að undirbúa mig aðeins fyrir skólann...sem byrjar bara eftir korter...eða svona..kannski ekki alveg. Var löngu búin að ákveða að ég yrði að byrja að lesa smá þar sem veturinn verður HELL. Alla vega, þá er auðvitað massa gott veður - Týpískt! Alltaf er þetta svona...eníveij - njótið þess meðan þið getið ;) Ég verð a.m.k. inni í allan dag og ætti því að vera gott veður fram á kvöld.

p.s. Gæti skroppið út eitt augnablik á milli 18 og 19 og því gæti vel ringt all svakalega á því augnabliki.
Posted by Picasa

fimmtudagur, ágúst 02, 2007