Skólabækurnar fá enga athygli - ja, ég er að minnsta kosti með tímabundinn athyglisbrest. Get bara alls ekki fest hugann við þetta núna. LK á víst að mæta með jólasveinahúfu í skólann á morgun og mér er því hollast að fara niður í geymslu og tjékka í jólaskrautskassann hvort ég finni ekki eina eða tvær. Ef ekki þá þarf ég að drusla mér í slindina og ná í eitt stykki. Best að krossa puttana...
Ef ég þekki mig rétt...þá á ég pottþétt eftir að taka upp smáááá meira jólaskraut til að henda upp....bara smáááá. Eyði örugglega allt of miklum tíma í þetta í kvöld. arg...óþolandi að vita fyrirfram hvað maður er ruglaður.
sunnudagur, desember 16, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Jæja - skreyttirðu í gær? :)
heyrðu jújú - ég tók smá rispu. Þó það netta að ég fékk aðeins viðráðanlegt samviskubit og komst fljótt yfir það.
Skrifa ummæli