Fyrir hver einustu jól tapa ég niður hæfileikanum til að fallbeygja - ja...eða a.m.k. sjálfstraustinu í þeim efnum og efast um sjálfa mig út í hið óendanlega varðandi það hvort ég fallbeygi nöfn fólks rétt eða ekki. Þessir fjandans til og frá miðar á jólagjöfunum.
Til að bæta gráu ofan á svart þá er fólk farið að nefna börnin sín með alls konar útlensk ættuðum nöfnum svo ég veit ekki hvort ég á yfir höfuð að beygja nafnið eða kannski bara bæta kommu og S-i við nafnið eins og í úglöndum.
Meeeerkilegt...
Eitt enn, mér leiðast orðið pakkaböndin, spurning um að sleppa þeim bara á næsta ári??
**Update kl 01:27**
Af hverju er yngra skrímslið ekki sofandi núna? hah? Hann á að heita veikur og ætti að liggja í móki uppi í rúmi...but noooo, hann hleypur núna á grilljón fram og tilbaka ganginn með risa teppi bundið um hálsinn og gólar "SÚPERMAAAAAAAAAAN" með aðra hendi upp í loft. Búinn að taka nokkrar ferðir á hjólinu sínu á ganginum, slatta af armbeygjum og gera lyftingaræfingar með bangsabauknum sínum. Já, og svo er hann búinn að leika smá með smíðadótið og tilkynna mér að það sé LEIÐINLEGT! að fara að sofa.
föstudagur, nóvember 30, 2007
mánudagur, nóvember 26, 2007
Brjóst...og skálastærðir
JORDAN...Eruð þið ekki að djóka? er hún BARA í E? RÍLÍ??
Pfft...þetta er ekkert, þið ættuð að sjá hvaða númer stendur á mínum. Verst samt að ég geti ekki farið og látið taka einhverja púðadruslur úr, öfunda hana þar.
Ég sem hélt að hún væri í skálastærð H eða K jafnvel, but hey...
Jordan lætur minnka - tjékk itt
þriðjudagur, nóvember 20, 2007
Snilld
Get ekki staðist það að linka á snilldar bloggarann Snorra. M&P áttu svona tæki, einmit viðarlitað með svörtu "stjórnborði" og það lifði endalaust, við vorum örugglega síðasta fjölskyldan í hverfinu með sjónvarp án fjarstýringar... tækið var keypt nokkrum árum áður en Steinar bróðir fæddist en að öðru leyti held ég að ég hefði getað skrifað undir færsluna.
Það að ég geti ekki staðist það að linka á þetta æðis blogg skilja einungis þeir sem hafa komið heim til mín síðustu 2 mánuðina ca.
TJÉKK IT hérna!
Það að ég geti ekki staðist það að linka á þetta æðis blogg skilja einungis þeir sem hafa komið heim til mín síðustu 2 mánuðina ca.
TJÉKK IT hérna!
mánudagur, nóvember 19, 2007
happy happy happy...daddaraaaa...
Er alveg í ruglinu núna, langar bara að pakka mér í jólapappír og henda mér undir jólaplastið (tréið). Nú þegar fólk er að leggjast í skammdegisþunglyndið þá er ég að springa...úr einhverri Æðis gleði bara. Allt er skemmtilegt, myrkrið svo kósý, þokan svo krúttleg, rigningin frískandi og kuldinn notalegur...Aaahhh...LOVE IT. Er eins og smákrakki þegar ég sé ný jólaljós hrúgast upp...svoooo notó, hef náð að halda aftur af sjálfri mér með seríurnar ennþá en það er BARA af því að geymslan er nokkurn veginn í rúst eftir flóðið um daginn.
Annars átti hinn helmingurinn...ekkert endilega betri samt, afmæli í gær - hálfsextugur! Bakaði köku fyrir hann og kokkaði ofan í familý-liðið á met-tíma. Ágætis dagur bara.
LK skóli í fríi s.l. föstudag og deildin hans SD lokuð í dag...allt í gírnum bara. bleee...
ps. er ekki á neinu...

fimmtudagur, nóvember 15, 2007
óíþróttamannsleg?
Hvað er eiginlega í rassgatinu á fólki. Það er alltaf að segja mér hvað ég sé svooo ekki íþróttamanneskja! ...SO?
Fyndna við það er að liðið er ekkert meira að hreyfa sig en ég sko...!? ég eeeekki að fatta. Ég hef alveg tekið eftir því að ég fer ekki í ræktina og fer ekkert út að hlaupa... og hvað??
Mig vantar 4-5cm í að komast alveg í splitt - en þið? Skal koma þessum 4cm niður í 0 cm. Tek næstu áskorun (raunhæfa takk) þegar það er í höfn...

mánudagur, nóvember 12, 2007
Breytingar...
Er að hugsa um að breyta aðeins til, nánar síðar.
Annars á hún Sigurrós grúppudúlla afmæli í dag og langar mig að senda henni bunka af hamingjuóskum með árin 30 þar sem ég get ekki skrifað comment á síðuna hennar. Vona að þú sjáir þetta þá bara í staðinn sæta.

þriðjudagur, október 30, 2007
Prakkari? nei, það vantar eitthvað alveg nýtt orð yfir hann
Sko! Um daginn átti SD að fara að sofa, hann gat ómögulega sofnað í sínu rúmi svo hann fékk fyrir náð og miskunn að sofna í mínu rúmi...eða svoleiðis átti þetta að vera. Þegar ég kíkti á hann var hann reyndar sofnaður en hann hafði aaaaðeins komist í skóladótið mitt...

Annað kvöld, stuttu síðar fékk hann einnig að sofna í mínu rúmi, Hrafnhildur kom í heimsókn til mín svo ég setti hann inn í rúm, kyssti hann góða nótt og bað hann um að fara strax að sofa. Eftir 5-10 mín heyrum við hrikalegan dynk í ofninum í herberginu. 4 sek. síðar öskraði gormurinn. Tók hann fram og spurði hvað hann hefði eiginlega verið að gera þar sem hann lenti með hnakkann á ofninum. "hoppa" svaraði hann. Við Hrafnhildur vorum að reyna að sannfæra hann um að það mætti ekki hoppa í rúminu þegar hann viðurkenndi að hann hefði verið að fara í HANDAHLAUP! uppi í rúmi og þess vegna lent á ofninum. Munaði litlu að húðin hefði sprungið á kúlunni...hjúkk.
En jæja, ég leit af honum í hálfa mínútu um daginn og kom að honum þegar hann var búinn að klára sólarvörnina úr brúsanum...

Í morgunn átti hann svo að fara í leikskólann en það gekk frekar erfiðlega að koma honum á lappir. Með ofursætu og mjúku röddinni sinni bað hann mig að kúra aðeins með sér í rúminu áður en hann færi á fætur....hvernig segir maður nei við því? Ég lagðist uppí og bað hann að lofa mér að fara þá strax í föt þegar ég segði til. Jújú hann var til í það. Needless to say...þá sofnuðum við bæði og vöknuðum ekki fyrr en það var orðið of seint að fara í leikskólann. Sem er kannski ekkert slæmt fyrir utan það að hann vaknaði á undan mér...
Þegar ég rauk frammúr eftir að fatta að hann væri farinn, fann ég hann í herbergi systur sinnar enn einu sinni. Hann hafði "puntað" sig aðeins og var með varagloss, augnskugga og lím-eyrnalokka. - alltaf að herma eftir stóru systur sko...
Stuttu síðar tek ég eftir að það var eitthvað fleira skrítið, birti hér mynd með og bið ykkur um að giska á hvað er öðruvísi... (hægt er að klikka á myndina til að fá hana stóra)
Fyrir utan svo auðvitað að hann fór greinilega á fætur í nótt...EINN og kveikti ÖLL ljós. Ég hafði um kvöldið brotið saman þvílíkt fjall af handklæðum sem ég átti bara eftir að setja inn í skáp, þau voru vel og vandlega tekin í sundur og lögð eins og teppi um alla stofuna og ganginn...ÆÐIS!
laugardagur, október 27, 2007
Prakkarastrik
Ég geri stundum tilraunir til að reyna að læra með gorminn heima....án árangurs...meira svona til erfiðis. Hann var rólegur og nokkuð hljóður í 5 mínútur um daginn, gott ef ég gat ekki opnað bók og lesið nokkrar línur til tilbreytingar. Fannst hann þó nokkuð MIKIÐ hljóður svo ég kíkti á hann. Þá sat hann inni í herbergi systur sinnar og naglalakkaði gólfið bleikt!! AAARrrrrrrgggghhhh...!
Gargaði auðvitað á hann að það mætti að sjálfsögðu ekki naglalakka gólfið fagurbleikt. Það væri bara BANNAÐ!! Náði mér í naglalakkseyðir og náði öllu lakkinu af gólfinu.....á endanum - enda var hann búinn með HEILT GLAS af bleiku naglalakki. WELL, á meðan ég þreif gólfið sat hann að ég hélt hljóður og skömmustulegur á bak við mig. Ég hugsaði á meðan ég kláraði að þrífa ósköpin upp að ég hefði átt að taka mynd af þessu og setja í "minninga"möppuna hans, ...er komin með slatta af efni í þann hluta. Ég skutlaðist svo inn á bað til að henda pappírnum sem ég hafði notað og þegar ég kom til baka sá ég að hann hafði nú heldur betur ekki setið SKÖMMUSTUlegur fyrir aftan mig.
Ó nei, hann hafði setið með sólheimaglott og var að naglalakka gólfið SILFRAÐ!!!!!!!!! VEEEIIIIIIIIIINNN... WTF?
Mér var svona u.þ.b. allri lokið....sá að það hafði ekki skilað neinu að garga á hann og skamma svo ég taldi svona ca. upp á 200 og spurði hann svo rólega hvað hann hefði eiginlega verið að gera? "mála gólfið fínt" var svarið. Spurði hann svo hvort ég hefði ekki verið að banna honum að mála gólfið fínt? "Nei" svaraði hann. Taldi aftur upp á 200 og sagði honum að ég hefði víst bannað þetta. Hann var fljótur að svara: "Nei, það má ekki mála gólfið BLEIKT, ég gerði hvítt núna" gaaaaaarrrggghhh.....

þriðjudagur, október 23, 2007
Iðnaðarmenn...
hehh...sko! 27. september síðastliðin bloggaði ég um að geymslan mín væri á floti. Byggingarstjóri hússins ætlaði að kíkja á þetta seinnipartinn þann dag. Ég beið heima allan daginn eftir honum.....hann kom í DAG!! Spurning hvenær hann kemur svo aftur til að LAGA þeta...eigum við að skjóta á 20. nóv?
...minni á MASSA rigninguna sem er NÚNA...arrrrrgghhhh...
miðvikudagur, október 17, 2007
Vinur í raun...!
Hún Idda er sko vinur vina sinna og reddaði mér alveg þegar ég var með Cranberries lag á heilanum og sendi mér þetta:
mánudagur, október 15, 2007
Hlaðan...
Það getur verið erfitt að einbeita sér hérna þegar næsti maður andar svoooo hátt með nefinu, annar alltaf geyspandi og sá þriðji fór úr skónum....ekki góð hugmynd.
Þeir sem þekkja mig vita líka að ég átti mjöööööög erfitt með mig þegar einn hérna fór úr skónum sínum og vippaði sér í þá al-hallærislegustu inniskó sem ég hef á ævi minni séð...ég er enn að hlæja...svona innra með mér.

Gleymdi...
Lúmskur...var að reyna að taka mynd af LK þegar SD tróð sér inná.....einhverra hluta vegna með kaffikönnuna með sér??
fimmtudagur, október 11, 2007
Sérstakt
Það eru fleiri en húsfrúin sem halda að þeir hafi "listræna *hóst* hæfileika" til að skreyta veggi heimilisins.
Já, ég hélt í sakleysi mínu að ég gæti kannski lært í nokkrar mínútur í dag þó SD væri heima.......BOY was I wrong!! Hann var hljóður í svona 2 mínútur og kom svo til mín vopnaður sólheimaglotti og sagðist hafa verið að gera svolítið. Ég spurði hann vitanlega hvað hann hefði þá verið að gera og þá tísti í mínum "Ég var að liiita........á vegginn sko". Jája, hann gerði sér lítið fyrir og litaði báða forstofuveggina, takið vel eftir strikinu sem liggur niður með ÖLLU horninu...hér er sko vandað til verks! Hah!

Samviskan...
Nú fékk ég póst í vikunni þar sem auglýstur var fundur fyrir foreldra. Pósturinn vakti í sjálfu sér enga brjálaða lukku eða spenning í að fara, ef ég á að vera alveg hreinskilin þá lokaði ég póstinum jafn hratt og ég opnaði hann. Nema hvað svo sendir skólastjórinn annan póst þar sem mælst er til að bekkjarfulltrúar mæti á fundinn...fyrir þá sem eru búnir að gleyma þá varð ég einhverra hluta vegna bekkjarfulltrúi.
Arrrggg...nú finnst mér eins og ég þurfi að fara en samt æjiii...veit ekki. Ohhh...hef það heldur ekki í mér að "skrópa". Finnst ógeðslega lélegt að mæta ekki en langar samt ekki. Garg!
Annars var ég á foreldrafundi áðan með kennaranum hennar LK og hún hafði barasta ekkert við mig að tala, LK er að brillera! Fékk sérstaklega hrós fyrir að fara alltaf eftir fyrirmælum, ganga vel um og vera stillt og góð. Æðis!

miðvikudagur, október 10, 2007
Æðislega frábært!!!
Nú á enn einu sinni að fara að loka deildum á leikskólanum. SD verður því heima einu sinni í viku frá og með næstu viku! ÆÐI!
Ekki það, voða notalegt að hafa hann heima en nú þarf ég að fara að druslast til að læra og ná upp því sem ég hef misst úr.......garggghhhhh...
Ekki það, voða notalegt að hafa hann heima en nú þarf ég að fara að druslast til að læra og ná upp því sem ég hef misst úr.......garggghhhhh...
þriðjudagur, október 09, 2007
Chicken....
Er kjúklingur með essi í gær og í dag. Glötuð...fékk þessa massa fínu sýkingu undir húðina or sum?? Varð voða fín í andlitinu :P ...eða ekki. En allt að lagast núna, bólgan farin og sýklalyfjakokteillinn blívar bara 4 sinnum á dag. BARA mér tekst þetta..hah!
er svo eiginlega bara búin á því...svooo þreytt...svoooo uppgefin. Langar bara að sofa í viku, helst borða og sofa og sofa soldið meira. Hvernig væri það nú? hmm...
er svo eiginlega bara búin á því...svooo þreytt...svoooo uppgefin. Langar bara að sofa í viku, helst borða og sofa og sofa soldið meira. Hvernig væri það nú? hmm...
mánudagur, október 08, 2007
Orkusugur!
Í þessarri færslu ætla ég að reyna að halda aftur af mér og blogga kurteist um eitt sem er að angra mig. Fyrirgefið mér ef ég missi út úr mér eitthvað óviðeigandi...
Nú á afmælisdaginn minn 3. október síðastliðinn lést afi minn. Áður en ég held lengra vil ég þó vinsamlegast biðja um að fá ekki samúðarkveðjur í commentin, þau eru óviðeigandi. Pabbi hringdi í mig um hádegið á afmælisdaginn minn og lét mig vita. Ég verð að viðurkenna að mér létti eiginlega, ég vissi að hann hefði verið að bíða eftir að fá að fara. Ég var fegin fyrir hans hönd.
Ég hef ákveðið að fara ekki í jarðarförina næstkomandi laugardag. Til að málin séu á tæru þá er jarðarförin ekki í næsta hverfi heldur á Húsavík en það er þó ekki heila málið. Það eru margar ástæður fyrir því að ég fer ekki, engin ein.
Það sem er að trufla mig eru systur pabba og bróðir mömmu(sá eldri). Þau geta ekki með nokkru móti virt það að ég hafi ákveðið þetta. Þau eru fussandi og sveijandi í símann við foreldra mína og tuðandi yfir þessu. Merkilegast við þetta er... tökum dæmi... Bróðir mömmu, kvartarinn, mætti ekki í brúðkaup systur sinnar (mömmu(&pabba)), hvoruga fermingarveislu okkar bróður míns...né aðra viðburði sem hafa verið í okkar fjölskyldu - svo ég flæki þetta örlítið er konan hans svo SYSTIR PABBA!!! Við hins vegar höfum keyrt hundruði kílómetra norður og til baka til þess eins að fara í eitt lásí kökuboð hjá þeim....OFT! Þau hins vegar koma ALDREI nema þurfa að fara til læknis/tannlæknis/augnlæknis eða í búðir hér fyrir sunnan. Gott og vel...
Ég er þó mest hissa á því að í þessu "hneykslismáli" hefur ENGINN hringt í MIG og spurt MIG af hverju ég komi ekki. Heldur þarf að tuða og nuða í foreldrum mínum eins og þau séu óhæfir uppalendur 27 ára gammallar sjálfráða...já, ég er að tala um mig!! Ég er í símaskránni people...
Það er líka eins og fólk sé haldið ákveðnu minnisleysi gagnvart þeirri staðreynd að afi minn var afskaplega lítill "AFI" minn, sem er svolítið annað en ég get sagt um hin barnabörnin sem bjuggu fyrir norðan. Hann sýndi engann áhuga á því sem ég var að gera...ever...alla vega svo ég viti til. Hann gat aldrei spjallað við mig. Ég var þó mjög samviskusöm og heimsótti hann í hvert skipti sem ég fór norður (sem er á hverju ári...stundum oftar en einu sinni). Hann talaði um það nokkur skipti í röð að frændi minn væri líklegast náttúrulaus...því hann átti bara hund. Svo þegar manngarmurinn eignaðist loksins barn þá talaði afi bara um veðrið. Við áttum bara enga samleið.
Ætli það sé ekki best að skrifa sem minnst um hann hér enda er ég ekkert að agnúast út í karlgarminn.
Æji....ég er hætt að spá í þetta, hugsa að ég hafi þegar farið mína síðustu ferð norður í bili.
Ég bara þoli ekki fólk sem baktalar mann og smælar svo sólheimabrosi næst þegar það hittir mann og minnist ekki á eitt né neitt.
Whatever!

miðvikudagur, október 03, 2007
Magasár..?
Ég er yfirleitt ekki þessi stressaða týpa...
...en ég veit ekki um neitt sem stressar mig jafn mikið og að halda barnaafmæli. Þá er ég ekki að meina fyrir ömmurnar og afana. *dæææssss*
...en ég veit ekki um neitt sem stressar mig jafn mikið og að halda barnaafmæli. Þá er ég ekki að meina fyrir ömmurnar og afana. *dæææssss*
fimmtudagur, september 27, 2007
Er mánudagur í dag??
Ef það er ekki friggin mánudagur í dag þá veit ég ekki hvað.
Byrjuðum á því að vakna of seint, reddaði því samt alveg og LK mætti á mínútunni í skólann svo það var í lagi. SD neitaði að fara í leikskólann og það tók mig 1,5 tíma að koma honum út. Var komin heim 20 mín í 10 í morgun og þá byrjaði fjörið svo fyrir alvöru.
Ég ákvað að fara ekki alveg strax að læra og tók pínu til, þurfti að skutla einum ponsu litlum kassan niður í geymslu og WHAT A MISTAKE that was! Kom að geymslunni minni á FLOTI. GRRRRR...Gat reyndar bjargað 2 hlutum (í uppáhaldi) sem eru úr tré en aukaparketið okkar sem við ætluðum að nota í smá á næsta ári er ónýtt...ásamt einhverjum smá slatta af öðru drasli.
Ég skutlaðist upp eftir moppu og handklæðum. Reyndi að skófla vatninu út, fyrst með löppunum og svo í restina með moppnni. Þegar það var svona u.þ.b. að verða fínt hjá mér sá ég að það fór að flæða undan veggnum frá næstu geymslu og yfir í mína....aaaarggg! Tók endalausan tíma að rusla vatninu út en á endanum voru þetta bara smá pollar svo ég lét það bara gott heita. Smellti handklæðunum fyrir hurðina svo ekki læki meira inn og moppunni undir vegginn þar sem lak(fossaði) niður.
Djö var ég orðin pirruð þarna. fór upp og klukkan að ganga þrjú ákvað ég að sækja krakkana í viiiiðbjóðs rigningunni sem var. Fór þó fyrst niður og vatt handklæðin og setti þau aftur á sinn stað. Klæddi mig í regngallan og út í bíl, þurfti að halda á LK út í bíl því ALLT sem hún hafði verið í var RENNANDI. Þau höfðu verið send út í frímínútur þegar það var SNARbilað veður....ÆÐI! SD þurfti ég að halda á líka því hann gat hvorki andað né gengið í vindinum...fauk bara. Málið vandaðist örlítið þegar heim kom...ekki spennandi að halda á þeim báðum + skólatösku.
Fór aftur niður í geymslu og vatt handklæðin í döðlur og setti á sinn stað + moppuna. Reyndi svo að ýta vatninu frá minni geymslu með því að draga það með skónum mínum. KL að verða hálf fimm var hringt og mér sagt að vera heima því iðnaðarmannapi kæmi að KÍKJA á þetta. Sendi nágrannan með LK í fimleikana. KL 19 var hann ekki mættur og ég þurfti auðvitað að sækja LK. Ég hafði þá ekki komist út í búð að versla í matinn svo McD var það fyrir krakkana...klukkan var jú orðin rúmlega SJÖ og þau þurfa að sofna snemma. Karluglan er ekki enn mættur - klukkan er 23:30!! Annað vandamál kom upp í kvöld en það er ekki pláss til að skrifa upp um það svo ég stoppa hér.
Má ég biðja um normal dag á morgun...pöööhlííííssss
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)